Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Auður Sigr Kristinsdóttir
Páll Guðjónsson
Ólafur Tryggvason Thors
Upplýsingar
svg
Byggt 1934
svg
190,6 m²
svg
7 herb.
svg
4 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegt einbýlishús með tveimur aukaíbúðum með sér inngangi, sem hægt er að leigja út.
Eignin stendur á 480 fm eignalóð og liggur fyrir samþykki Reykjanesbæjar fyrir 94 fm byggingu á baklóð fasteignarinnar.


Nánari lýsing: Frábær og vel uppgert hús á góðum stað í miðbæ Keflavíkur sem hefur hlotið viðurkenningar í tvígang fyrir breytingar, hönnun og útlit.
Komið inn á forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Herbergi er inn af forstofu með parketi á gólfi. Gesta salerni með innréttingu, klósetti og flísum á gólfi. 
Eldhús er með innréttingum, sérsmíðaðar í anda hússins, bökunarofn, gas eldavél, vifta og ísskáp. Inn af eldhúsi er mjög stór og björt stofa/borðstofa með parketi(massíf eik) á gólfi,  og arni(er ekki virkur í dag), úr stofu er gengið niður hringstiga í sjónvarps og tónlistarherbergi með flísum á gólfi, stórt baðherbergi með hornbaðkari sturtu, gufubaði, innréttingu, klósetti, skolskál og flísum á gólfi. Gólfhiti er á allri neðri hæðinni.  Þvottaherbergi er rúmgott með skápum og útgengi út. Rúmgott herbergi með miklu skápaplássi, flísum á gólfi og útgengi út á verönd og þaðan út í garð. Veröndin er með sérsmíðuðum heitapotti, úti eldhús með arni, góðum borðkrók og fallegum sérsmíðuðum fossi niður vegginn. Veröndin er niðurgrafin mjög glæsileg og skjólgóð. Bílskúrnum var breytt í tvær íbúðir, önnur er stúdíóíbúð og hin tveggja herbergja með eldhúsi, mjög snyrtilegt og vel gert í anda hússins, baðherbergi eru inn af báðum íbúðunum og með sturtu. Garðurinn er með sér inngangi og eru þrjár verandir í garðinum, mjög snyrtilegar og í anda hússins. Í garðinum stendur hús sem notað er sem geymsla.

Húsið er allt hið vandaðasta og fallega hannað og úr góðum efnum. Sér smíðað grindverk og hlið, eldhús, skápar, inngangur í garðinn og fl.
Frábær og vönduð eign sem bíður uppá marga möguleika, er í hjarta Keflavíkur, tvær leigueignir, hægt að stækka eignina.
Falleg eign sem vert er að skoða.
Bókaðu skoðun.

Alla nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 eða [email protected]

 

Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík