Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1999
66,9 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Útsýni
Sérinngangur
Laus strax
Lýsing
Elka lgf. s. 863-8813 og TORG fasteignasala kynna einstaklega sjarmerandi og mikið endurnýjað sumarhús í 15,7 hektara landi Lunansholts í Rangárþingi ytra.
Húsið er finnskt bjálkahús á steyptri plötu. Skráð stærð þess er 66,9 m². Miklar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni undanfarin fimm ár.
Á neðri hæð er forstofa, eldhús og stofa í opnu alrými, svefnherbergi og baðherbergi. Í risi er er svefnrými og þaðan er útgengt á svalir.
Upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 - [email protected]
Nánari lýsing;
Gengið er inní flísalagða forstofa en útidyrahurðin var endurnýjuð árið 2026
Eldhúsið var endurnýjað 2024 með nýrri innréttingu og tækjum. Nýtt parket á gólfi.
Baðherbergið er með nýlegri innréttingu, flísum og sturtuklefa.
Svefnherbergi á neðri hæð er með nýlegum skápum.
Ný og öflug varmadæla var sett upp árið 2022, ásamt sex nýjum ofnum og nýjum innanáliggjandi lögnum fyrir heitt og kalt vatn.
Þriggja fasa rafmagn hefur verið tekið inn í húsið og ný rafmagnstafla. Ný kaldavatnslögn var lögð árið 2023.
Ljósleiðari hefur verið plægður niður og tekinn inn í húsið en eftir er að tengja hann. Einnig hefur verið lagt fyrir vatni og frárennsli að heitum potti á lóðinni vestan við húsið.
Reglulega hefur verið borið á húsið og pallinn, síðast árið 2025.
Húsið stendur á um 15,7 hektara afgirtu landi sem skiptist í efra og neðra hólf og hentar vel til hrossabeitar. Auðvelt er að skipta landinu frekar upp með rafgirðingum.
Landið er leigulóð og er leigan fyrir árið 2026 kr. 333,183 og greiðist í tveimur hlutum.
Útbúin hefur verið frostþolin brynning með hitavír og hlífðarumbúnaði.
Landið hefur verið ræst fram með tveimur löngum skurðum og sléttað úr ruðningum sem mynduðust við framkvæmdina.
Við húsið hefur verið útbúið stórt afgirt malarplan með góðu stæði fyrir bíla og kerrur og nægu svigrúmi til að snúa við með hestakerru.
Við húsið stendur um 6 m² upphitað garð- og geymsluhús með opnanlegum glugga.
Mikill afgirtur trjágróður er umhverfis húsið og skapar skjólgóðan og fallegan sælureit. Einstakt útsýni er frá eigninni, meðal annars til Heklu.
Smellið hér til að sjá staðsetningu eignarinnar á Google Maps.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. jún. 2022
13.190.000 kr.
17.300.000 kr.
66.9 m²
258.595 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026