Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
155,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 17. ágúst 2026 kl. 17:30 til 18:00

OPIÐ HÚS mánudaginn 17. ágúst frá kl. 17: 30 - 18.00 við Miðdal 6 í Vogum á Vatnsleysuströnd, allir velkomnir. Svala Haraldsdóttir lgfs verður á staðnum, vinsamlegast boðið komu ykkar í tölvupósti á [email protected].

Lýsing

Virkilega fallegt, bjart og vel skipulagt 4-5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr og stórum sólpalli við Miðdal 6 í Vogum við Vatnsleysuströnd.
Eignin er alls 155,2 fm og skiptist þannig að íbúðarhluti er 123 fm og bílskúr 32,2 fm.


Nánari lýsing: 
Forstofa afar rúmgóð  með fataskápum og flísar á gólfi.
Þvottahús er innaf forstofu með glugga, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur, skápar og snúrur yfir bekk þar sem er aukin lofthæð. Flísar eru á gólfi.  
Forstofuherbergi með parketi.
Eldhús, borðstofa og stofa flæða saman í bjart alrými með útgengt út á mjög góðan sólpall með skjólveggjum.
Eldhús með ljósri innréttingu, tvöföldum ísskáp, ofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél. Eyjutangi með helluborði og góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi með skápum og parketi á gólfum
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn. Innrétting, hillur og opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi og veggjum.
Bílskúr með máluðu gólfi og rafmagnsopnara, heitt og kalt vatn.
Innaf bílskúr er geymsla sem í dag er nýtt sem herbergi sem tengt er við forstofuherbergið ( lítið mál að loka og hafa þá 4 svefnherbergi)
Bílaplan er hellulagt með hita.
Sólpallur er stór með góðum skjólveggjum einnig er geymsluskúr á lóðinni.
Lóðin er afar stór endalóð
Ekkert starfandi húsfélag er í raðhúsalengjunni.


* Bílaplan er stórt og mögulegt að leggja þar þremur bílum.
* Hiti er í bílaplani
* Húsið er klætt álklæðningu og harðvið í bland.
* Aukin lofthæð í hluta eignar sem gefur henni skemmtilegan blæ.
* Mjög stór endalóð.
* Róleg botnlangagata.

Falleg eign á góðum stað í endaraðhúsi í grónu hverfi í þessu vinsæla og ört stækkandi bæjarfélagi.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2013
24.500.000 kr.
22.500.000 kr.
155.2 m²
144.974 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone