Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1996
217 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna einstaklega fallega eign að Kjartansstöðum 2 í Flóahreppi. Um er að ræða rúmgott einbýlishús með innbyggðum tvöföldum bílskúr og um 1,5 hektara landi í grónu og friðsælu umhverfi skammt frá Selfossi.
Húsið er alls 217 fm, þar af er íbúðarhlutinn 161,5 fm og bílskúr 55,5 fm. Eignin stendur á fallegri lóð þar sem há tré mynda einstakt skjól og næði.
Húsið er bjart og rúmgott og skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni með sturtu, þvottahús og innbyggðan tvöfaldan bílskúr. Eignin er tengd hitaveitu.
Möguleiki er á að kaupa meira land með húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa og borðstofa eru einstaklega rúmgóðar og bjartar með mörgum gluggum og útgengi út í garð með stórum sólpalli og heitum potti.
Eldhús hefur verið endurnýjað á virkilega smekklegan hátt. Þar er vönduð, hvít sérsmíðuð innrétting, gott skápa- og vinnupláss, stór eldunareyja með góðri aðstöðu og rúmgóður borðkrókur við glugga.
Þvottahús er rúmgott með innréttingu, góðu vinnuplássi og útgengi út í garð.
Hjónaherbergi er innst á svefnherbergisgangi, rúmgott með fataherbergi, Útgengt þaðan út á lóð. Fataherbergi er með góðum hillum og hirslum.
Svefnherbergin eru alls fjögur og öll rúmgóð. Eitt þeirra er í dag nýtt sem skrifstofa.
Baðherbergi er mjög rúmgott en verið er að endurnýja það frá grunni, með "walk in" sturtu, baðkari, upphengdi salerni og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum.
Gestasalerni er innaf forstofu með salerni, handlaug og sturtu.
Bílskúr er tvöfaldur, alls 55,5 fm, með góðu rými fyrir tvo bíla, geymslu og fjölbreytta nýtingarmöguleika. Innangengt er úr íbúðinni í bílskúrinn. Ath. að mynd úr bílskúr er unnin með gervigreind!
Byggingarár skv. FMR er skráð 1995 en húsið var byggt árið 2003.
Kjartansstaðir 2 er sérstaklega falleg eign þar sem mikill trjágróður skapar gott skjól, næði og einstaka stemningu.
Heimreiðin liggur í gegnum gróið umhverfið að húsinu og umhverfis það eru stór og falleg útisvæði.
Staðsetningin sameinar kyrrð sveitarinnar og þægilega nálægð við alla helstu þjónustu á Selfossi.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. jan. 2021
44.683.000 kr.
110.000.000 kr.
999.5 m²
110.055 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026