Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
parhús

Seljuskógar 6

300 Akranes

128.500.000 kr.

555.556 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2300911

Fasteignamat

108.650.000 kr.

Brunabótamat

127.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2018
svg
231,3 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt og vandað parhús á tveimur hæðum byggt úr CLT límtréseiningum og klætt með lerki. Gluggar og hurðir eru timbur/ál. Húsið er með 3 svefnherbergjum, opinni stofu með borðstofu og eldhúsi, 2 baðherbergjum, gestasalerni og bílskúr á Akranesi.
 
- Hjónaherbergi með sér fata-og baðherbergi. Útgengt á svalir sem snúa til suðurs
- Pallur með yfir byggðu útieldhúsi og heitum potti. 
- Fullbúinn bílskúr með kjallara og epoxy á gólfum. Hleðslustöð er fyrir rafbíl.


Birt stærð samkv. HMS er 199,3 m2. Kjallari  í bílskúr er ekki inni í fermetra tölu þar sem hann er skráður sem fylgirými. Lofthæð í kjallara er 2 metrar.
Dökkbæsað eikarparket lagt í fiskibeinamynstri á gólfum, auk flísa og epoxy. Hljóðdúkur er í öllum loftum með innfelldri lýsingu. Vola blöndunartæki eru í öllum votrýmum nema þvottahúsi og bílskúr. Loftskiptikerfi er í húsinu.
Innanhúss- og lýsingarhönnun: Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnar Innanhúss arkitektar.
Innkeyrsla er steypt með snjóbræðslu.
Vönduð og hugguleg eign sem vert er að skoða.
 
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnar Már Ragnarsson astmf. S:852-7575 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða [email protected]


www.eignavakt.is  
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Nánari lýsing:
Jarðhæð:
Anddyri: er parketlagt og með góðum fataskápum. Stigi upp á efri hæð er í anddyri. Mikil lofthæð.
Stofa, borðstofa og eldhús: mynda eitt opið rými með parket á gólfi.
Eldhús: er með vandaðri innréttingu frá Parka með Bianco Carrara marmararborðplötum frá Rein steinsmiðju. Eyja með spanhelluborði. Háir skápar sem ná upp í loft. Búrskápur,  bakarofn, innbyggður ísskápur og frystiskápur, báðir í fullri hæð.  
Pallur: er 70 m2 þar sem er útieldhús sem eru undir glerþaki, einnig er heitur pottur. Búið er að leggja fyrir útisturtu. Plastfjalir eru á gólfi. 
Gestasalerni: er með salerni og vaski. Innbyggður skápur og flísar á gólfi.  
Þvottahús: er með góðri innréttingu og flísum á gólfi. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Flísar á gólfum. Innangengt er úr þvottahúsinu í bílskúrinn
Bílskúr: er fullfrágenginn með epoxy á gólfum. Einnig er 32m kjallari undir bílskúrnum sem nær einnig undir þvottahús. Kjallari er ekki inni í fermetratölu hússins þar sem að hann telst sem fylgirými.
2. hæð
Hjónasvíta: er parketlögð með fataherbergi og baðherbergi. Á baðherbergi er baðinnrétting, upphengt salerni og "walk-inn sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Útgengt er á svalir sem snúa í suður.
Sjónvarpshol / herbergi. Rýmið er rúmgott og pláss fyrir stóran og kósí sófa
Svefnherbergi 1 : Er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 :  Er með parketi á gólfi og litlu fataherbergi.
Baðherbergi: Er með baðkari með sturtu, innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni og góðri innréttingu.

Eignin er í rólegu og fjölskylduvænu hverfi nálægt grunn- og leikskóla.
Akranes er einstaklega barnvænn og fjölskylduvænn bær þar sem stutt er í náttúruna og góða þjónustu. Akranes er í mikilli uppbyggingu og hentar vel fyrir fjölskyldufólk sem vill sameina góða þjónustu, öryggi og næði. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.



 

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík