Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
217,1 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 14. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Miklaborg kynnir: Glæsilegt raðhús á pöllum ásamt sérstæðum bílskúr í skjólgóðri botnlangagötu að Brautarási 10 í Reykjavík. Stutt í skóla, leikskóla, Árbæjarlaug, alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Eignin skiptist í eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpskrók í opnu rými, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og 2ja herbergja aukaíbúð í kjallara/jarðhæð með sérinngangi, auk sérstæðs bílskúrs.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali: [email protected], s:8241965.

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi. Á vinstri hönd frá forstofu er rúmgott herbergi. Á hægri hönd er mjög rúmgott þvottahús, þar sem áður var eldhús, með miklu skápaplássi og glugga. Inn af þvottahúsinu er gestasnyrting. Frá forstofu er gengið upp á miðpall þar sem eldhús, borðstofa, stofa og sjónvarpskrókur eru í björtu og fallegu alrými sem snýr í vestur, með aukinni lofthæð. Eldhúsinnréttingin er frá HTH, tveir ofnar í vinnuhæð spanhelluborð á eyju, tæki frá AEG. Fallegur arinofn með glerhurð, sem skapar hlýlegt og notalegt andrúmsloft, er í stofu og þaðan er gengið út á vestursvalir en frá þeim er stigi niður í garð með góðum palli og heitum potti. Frá alrými er gengið upp á efsta pall. Þar eru rúmgott hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Á efsta palli er einnig rúmgott baðherbergi með "walk in" sturtu með innfelldum blönduartækjum, upphengdu salerni og skápum. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Frá forstofu er gengið niður í séríbúð í kjallara/jarðhæð, með sérinngangi frá vesturhlið hússins. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofurými, rúmgott svefnherbergi með góðum skápum og mjög rúmgott baðherbergi með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni, góðu skápaplássi og fallegum flísum á gólfi og veggjum að hluta, tengt er fyrir þvottavél og þurrkara. Parket er á öllum gólfum hússins nema votrými eru flísalögð. Hiti er í gólfum í forstofu, þvottahúsi og baðherbergi á efsta palli. Bílskúrinn er með hita, heitu og köldu vatni, rafmagni og gluggum. Loft bílskúrs verður einangrað fyrir afhendingu og skipt verður um bílskúrshurð. Fyrir framan bílskúr eru þrjú bílastæði. Að sögn seljanda hefur eignin fengið gott viðhald og var mikið endurnýjuð á árunum 2018 og 2019 og innra skipulagi einnig breytt: Eldhús var endurnýjað, einnig þvottahús, baðherbergin sem og öll neðsta hæðin endurnýjuð og endurskipulögð, skipt var um öll gólfefni og hiti lagður í gólf forstofu, þvottahúss og baðherbergis á efri palli.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali: [email protected], s:8241965.


Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2012
39.450.000 kr.
36.000.000 kr.
217.1 m²
165.822 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík