Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Austurbrú 2

600 Akureyri

55.900.000 kr.

1.054.717 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2359976

Fasteignamat

47.000.000 kr.

Brunabótamat

60.370.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
53 m²
svg
2 herb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Nordik fasteignasala kynnir eignina Austurbrú 2, 600 Akureyri
- Hafðu samband í síma 4621212 eða í tölvupósti á [email protected] -

***Sjá myndband af eign hér***


Austurbrú 2 er 53 fm. íbúð á annarri hæð, auk bílastæðis í bílakjallara, í fjölbýlishúsi með lyftu í miðbæ Akureyrar.  Falleg fasteign með útsýni út Eyjafjörðinn. Gengið er inn í stigahús og lyfta tekin upp á 2 hæð. Þar er gengið út á opinn stigagang og inn í íbúðina. Gengið er inn í gang og þaðan inn í svefnherbergi með góðum fataskáp, baðherbergi með innangenginni sturtu og í opna sambyggða stofu og eldhús. Úr stofunni er gengið út á svalir. 

Íbúðin er á frábærum stað í nýlegu húsi í miðbæ Akureyrar. Sér bílastæði fylgir og er í bílastæðahúsi undir húsinu. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparket á gólfi og spónlagður eikarskápur. 
Svefnherbergi: Harðparket  á gólfi, góður spónlagður eikarskápur, með hæglokandi skúffum að hluta.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og í inngenginni sturta. Björt, hvít, innrétting. Handklæðaofn.
Stofa/eldhús: Sambyggð stofa og eldhús. Tvískipt eikar og hvít innrétting. Gengið út á steyptar svalir sem snúa til norðurs.
Bílakjallari: Hægt að komast að bæði með lyftu og stiga. Sér bílastæði fylgir eigninni.

Annað: 
- Er á góðum stað í miðbæ Akureyrar og nýtur alls þess góða sem þar er að finna án þess að verða fyrir miklum beinum áhrifum frá lífi í bænum.
- Austurbrú 2-4 var reist árið 2017 og var vandað til verka við reisningu hússins.
- Mynddyrasími er í eigninni.
- Innfelld lýsing í eigninni allri.
- Hæglokun er í öllum skúffum.
- Snjóbræðsla í bílageymslurampi.
- Húsið er upphitað með Rehau gólfhitakerfi, hitastillir er í hverju herbergi.
- Pottrör eru í skólplögnum með tilliti til hljóðvistar.
- Hljóðeinangrunargler er í öllum gluggum.
- Vönduð og eiguleg eign.
 
Nánari upplýsingar veitir
Andres Már Magnússon lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 4621212 eða í tölvupósti á [email protected]


​​​​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nordik fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Nordik fasteignasala

Nordik fasteignasala

Hafnarstræti 95, 3 hæð, Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. júl. 2020
41.650.000 kr.
30.000.000 kr.
10205 m²
2.940 kr.
23. des. 2023
41.650.000 kr.
48.000.000 kr.
53 m²
905.660 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Nordik fasteignasala

Nordik fasteignasala

Hafnarstræti 95, 3 hæð, Akureyri
phone