Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
73,3 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 5. ágúst 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Vinastræti 12, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 03 02 05. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 5. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Fasteignasalan TORG Kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í Góðu fjölbýlishúsi að Vinastræti 12 í Urriðaholti, Garðabæ. Íbúðin er skráð 73,3 fm. og skiptist í forstofu, svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými sem rúmar stofu, borðstofu og eldhús. Frá stofu er útgengt út á svalir sem snúa til suðurs. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði með hleðslustöð í lokuðum og upphituðum bílakjallara ásamt sérgeymslu í sameign. Eignin er í fallegu fjölbýlishúsi sem byggt var 2019 af ÞG VERK. Húsið er vel staðsett ofarlega í Urriðarholtinu í grennd Urriðaholtsskóla sem er bæði leik- og grunnskóli. Í hverfinu er veitingahús, kaffihús og sjálfvirk matvöruverslun. Í næsta nágrenni eru fleiri verslanir og þjónusta, golfvöllur, útivistarsvæði í Heiðmörk og Vífilsstaðavatn. Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í anddyri með harðparketi á gólfi og loftháum tvöföldum fataskáp.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápaplássi er af vandaðri gerð frá GKS, framleiddar af Nobilia í Þýskalandi. Bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Eyja með góðu vinnu- og barstólaplássi, helluborði og háf þar fyrir ofan. Harðparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru í opnu og björtu alrými með stórum gluggum og með harðparketi á gólfi. Útgengt er á suðursvalir.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og hvítur fimmfaldur lofthár fataskápur.
Baðherbergi: Grá falleg innrétting með handlaug og speglaskáp með lýsingu. Upphengt salerni og sturta með hertu gleri. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Geymsla: Eigninni fylgir sérgeymsla á jarðhæð.
Garður: Stór og fallegur sameiginlegur garður. Góð aðkoma er að húsinu.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði er í bílakjallara og búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði. borgarinnar. Í göngufæri er Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
Samkvæmt vef Garðabæjar: Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities. Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortna náttúru og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir.
Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á góðum stað í Urriðaholti Garðabæ. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem verslanir og skóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. feb. 2023
52.950.000 kr.
62.000.000 kr.
73.3 m²
845.839 kr.
22. ágú. 2019
3.400.000 kr.
41.200.000 kr.
73.3 m²
562.074 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026