Opið hús: Bárugata 7, 101 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 9. ágúst 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Alls 110,1 fermetrar
Aukin lofthæð
Endurnýjað eldhús, eyja með kvartsstein.
3 svefnherbergi
2 stofur
1 baðherbergi endurnýjað
Stór sameiginlegur garður með trampolini
Svalir til suðausturs
Íbúðin er á 2. hæð. Sameiginlegur inngangur frá fyrstu hæð.
Gengið er upp steyptar tröppur inn um útidyrahurð og þaðan inn í forstofu.
Úr holi er gengið út á svalir með fallegu útsýni í suðaustur. Holið er með fataskápum.
Íbúðin er öll með parketi og hluti baðherbergis er með flísum.
Úr stigaholi er gengið inn í íbúðina og á vinstri hönd taka við tvær samliggjandi stofur. Rennihurð skilur að stofurnar.
Baðherbergi er með upphengdu salerni og sérsmíðuðum innréttingum. Í baðherberginu er stór uppsteypt sturta og handklæðaofn. Baðherbergið var endurnýjað að hluta og á gólfum er parket og flísar.
Eldhús hefur verið fært yfir í stofu og er endurnýjað. Fallegur steinn. Hluti af eldri innréttingu endurnýttur. Mikið skápapláss.
Svefnherbergi með skápum sem ná upp í loft. Áður var fataherbergi innaf
Barnaherbergin eru tvö og eru með parket.
Mikil lofthæð er í íbúðinni auk þess sem falleg gereft og skrautlistar í loftum setja glæsilegan svip á íbúðina.
Sameign: sameign í kjallara hússins en þar eru þvottahús og þurrkherbergi og hitaherbergi ásamt geymslum. Sérgeymsla skráð 5,9 fm fylgir íbúðinni.
Garðurinn: Í kringum húsið er einstaklega fallegur, skjólgóður og gróinn garður með stórri grasflöt, trampolín getur fylgt. Garðurinn er hellulagður að hluta. Steypt grindverk er kringum garðinn og tvö stálhlið.
Viðhald: Íbúðin var öll endurnýjuð af fyrri og núverandi eigendum. Húsinu hefur verið ágætlega við haldið alla tíð. Allir gluggar voru endurnýjaðir fyrir nokkrum árum af sérfræðingi í byggingu gamalla húsa og heppnaðist sú framkvæmd einstaklega vel.
Húsið var byggt af Tryggva Guðmundssyni gjaldkera sem hann reisa eftir teikningu Einars Erlendssonar árið 1929. Dóttir hans Nína Tryggvadóttir listmálari ólst upp í þessu húsi.
Einstök eign á gullfallegum stað í gamla Vesturbænum.
Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 7751515, tölvupóstur [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.