Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1954
200,8 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - [email protected]
Grænamýri 9 - Glæsilegt og mikið endurnýjað 5 herbergja einbýlishús á eftirsóttum stað á Brekkunni - stærð 200,8 m².
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, sjónvarpshol, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi, gólfhita og stórum hvítum fataskáp.
Holið er rúmgott með grenipanil á gólfum, fjórföldum hvítum fataskáp og tengir það saman helstu rými eignarinnar.
Eldhúsið er með fallegri ljósri U-laga viðarinnréttingu, ljósri borðplötu og miklu skápa- og vinnuplássi. Hvítar flísar eru á milli efri og neðri skápa og veggur við vask er flísalagður upp í loft.
Stofan er björt og rúmgóð með grenipanil á gólfum. Úr stofu er gengið út á hellulagða suðvesturverönd og gróinn garð.
Sjónvarpsholið er milli stofu og eldhúss og nýtist það rými einstaklega vel.
Svefnherbergin eru fjögur. Þrjú þeirra eru með grenipanil á gólfum og miklu skápaplássi en herbergi inn af forstofu er með plastparketi á gólfi.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað og er glæsilegt með dökkum flísum á gólfi og veggjum, gólfhita, rúmgóðri sturtu með glervegg, vegghengdu wc, hvítum innréttingum og handklæðaofni.
Þvottahúsið er í kjallara með máluðu gólfi, borði með skolvaski og góðu hilluplássi.
Geymslan er einnig í kjallara inn af þvottahúsi.
Annað:
- Baðherbergi var tekið í gegn árið 2019
- Húsinu var breytt í íbúðarhús árið 1981 og þá voru allar lagnir endurnýjaðar
- Gróinn og skjólgóður garður
- Geymsluskúr er á lóðinni sem og garðskýli sem fylgja með við sölu
- Tengi fyrir hleðslustöð var sett upp á vestur hlið hússins við bílaplanið
- Einstaklega vel staðsett eign á vinsælum stað á Brekkunni
- Hitaþráður er í þakrennu
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. júl. 2020
50.050.000 kr.
63.600.000 kr.
200.8 m²
316.733 kr.
29. ágú. 2013
28.900.000 kr.
34.500.000 kr.
200.8 m²
171.813 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026