Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Sigtún 23

105 Reykjavík

129.900.000 kr.

846.254 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019224

Fasteignamat

104.850.000 kr.

Brunabótamat

74.530.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
153,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Björt og glæsileg sérhæð með stórum bílskúr og tvennum svölum.

Mikið endurnýjuð 153,5 m² efri sérhæð í fallegu húsi við Sigtún. Íbúðin snýr vel við sólu og nýtur góðrar birtu frá stórum gluggum úr öllum áttum. Við endurnýjun íbúðar var leitast við að láta „gamla“ stílinn halda sér. Fallegir franskir gluggar, hvítlakkað tréverk, vönduð gerefti, háir gólflistar og kverklistar í loftum setja sterkan svip á eignina. Lofthæð íbúðar er 2,70 metrar. Nýslípað eikarparkett er á flestum gólfum. Hæðinni fylgja tvennar svalir, 31,2 m² bílskúr, 5,2 m² sérgeymsla í kjallara og aðgangur að stóru sameiginlegu þvottahúsi.


Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða k[email protected]

Nánari lýsing
Inngangur og stigagangur: Gengið er inn um sameiginlegan inngang með risíbúð og upp bjartan, teppalagðan stigagang með stórum glugga. Á stigapalli er útgengt á vestursvalir. Þaðan er gengið inn í íbúðina um fallega hurð með fösuðu gleri.

Hol: Rúmgott og bjart hol myndar miðrými íbúðarinnar og tengir saman öll herbergi. Þar er stór innbyggður fataskápur og geymsla með rafmagstöflu.

Stofur: Stofurnar eru tvær, bjartar og rúmgóðar. Hægt er að aðskilja þær með franskri, hvítlakkaðri rennihurð með gleri. Úr stofu er gengið út á suðursvalir. Stofurnar eru samliggjandi og henta vel bæði sem setustofa og borðstofa.

Eldhús: Eldhúsið er rúmgott og bjart með stórum glugga og fallegri, upprunalegri innréttingu með hvítlökkuðum hurðum. Innréttingin býður upp á mikið skápapláss og efri skápar ná undir loft. Í eldhúsi er sambyggð eldavél og bakaraofn, vifta yfir eldavél og tengi fyrir uppþvottavél ásamt góðum borðkrók. Borðplötur eru úr olíubornu eikarlímtré og eru nýslípaðar. Hitalagnir í gólfi.

Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott og snyrtilegt. Þar eru baðkar, flísalagður walk-in sturtuklefi með nýjum glervegg, salerni, handlaug og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi veitir góða náttúrulega loftræstingu. Mósaíkflísar á hluta veggja. Hitalagnir í gólfi.

Svefnherbergin eru tvö:

Hjónaherbergið er bjart og rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp.

Annað svefnherbergi er einnig rúmgott og bjart með gluggum í tvær áttir.

Bílskúr og geymsla: Bílskúrinn er fjær húsinu og er hann 31,2 m² með sérbílastæði fyrir framan. Þar er hiti auk rennandi vatns. Bílskúrshurð er með sjálfvirkum opnara.

Í kjallara hússins er 5,2 m² sérgeymsla íbúðarinnar og sameiginlegt gott þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Lóð og innkeyrsla:

Við húsið er einstaklega stór og gróinn sameiginlegur garður með sameiginlegri timburverönd á baklóð hússins.

Innkeyrslan er rúmgóð og er hún bæði steinlögð og upphituð.


img
Kjartan Ísak Guðmundsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
img

Kjartan Ísak Guðmundsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. ágú. 2009
29.040.000 kr.
34.200.000 kr.
153.5 m²
222.801 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík

Kjartan Ísak Guðmundsson

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík