Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Upplýsingar
svg
Byggt 2003
svg
186,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 11. ágúst 2026 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Blómvellir 21, 221 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 11. ágúst 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Einstaklega fallegt og vel skipulagt 5-6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr,
tveimur sólpöllum og rúmgóðum 12,6 fm svölum við Blómvelli 21 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 162 fm þar af neðri hæðin 87,3 fm og efri hæðin 74,7 fm og bílskúr 24,7 fm, samtals 186,7 skv. fasteignaskrá.


* Tveir sólpallar og stórar svalir
* 4 svefnherbergi og sjónvarpshol sem auðveldlega hægt er að breyta í herbergi.
* Róleg gata framarlega á völlunum
* Hleðslustöð fyrir bíla
* Hiti í bílaplani
* Stór lóð fyrir aftan hús.

Nánari lýsing;
Neðri hæð:
Forstofa með skápum og flísar á gólfi,
Gestasnyrting er innaf forsofu með opnanlegum glugga.
Svefnherbergi með parket á gólfi
Stofa og borðstofa í björtu alrými með útgengt út á stóran pall sem snýr í suðurpott. 
Eldhús með hvítri innréttingu,  uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Stæði fyrir tvöfaldan ísskáp.
Þvottahús er innaf eldhúsi með góðum skápum, hvítri innréttingu með vask, stæði fyrir þvottavél og þurrkara,
Innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi og útgengt á sólpall fyrir aftan hús.
Geymsla með hillum er fyrir framan bílskúr.
Bílskúrinn er flísalagður með hita, rafmagni, vatni, rafmagnsopnara og opnu geymslulofti.  Hiti í plani að framan. 

Efri hæð:
Stigi upp á efri hæð er parketlagður.
Þrjú svefnherbergi, skápar eru í hjónaherbergi.
Sjónvarpshol sem mögulegt er að breyta í herbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Hornbaðkar með nuddi, sturta,upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

-Góður sólpallur með skjólveggjum er fyrir framan hús
-Sólpallur fyrir aftan hús með mynstursteypu.
-Rafmagnsrör í báðum pöllum.

Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda.
2024 Þak á húsi og bílskúr málað
2024 Gluggar málaðir
2024 Mynstursteypa á sólpall bakvið húsið.
2024 Tölvutenglar um allt hús.

Frábær staðsetning í rólegri götu, innarlega á völlunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.  Grunn- og leikskóla, fjölbreytt úrval verslana,  Íþróttamannvirki og sundlaug eru allt í þægilægri göngufjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / [email protected] og
Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]


Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

img
Eiríkur Svanur Sigfússon
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Eiríkur Svanur Sigfússon

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Eiríkur Svanur Sigfússon

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði