Opið hús: Bergþórugata 29, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 13. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna: Huggulega 36,6 fm 2ja herbergja ósamþykkta íbúð í kjallara á góðum stað við Bergþórugötu. Fallegur og lokaður bakgarður er fyrir aftan húsið og göngustígur sem liggur eins og Bergþórugatan. Íbúðin er í hjarta borgarinnar og er Sundhöll Reykjavíkur, Tækniskólinn og Skólavörðuholt í göngufæri.
Íbúðin er skráð 36,6 fm hjá HMS og er geymsla undir stiganum inni í þeirri tölu. Geymslan er skráð 7,9 fm skv HMS en stór hluti hennar er undir 1,8 metra hæð og því er íbúðin sjálf skráð 34,6 fm. Heildar gólfflötur íbúðar ásamt geymslu er því 42,5 fm.
Nánari lýsing eignar:
Íbúðin er björt með venjulegri lofthæð.
Komið er inn í hol. Vinnuborð og aðstaða fyrir tölvu eða annað.
Til vinstri er svefnherbergi með stórum fataskáp.
Stofa og eldhús eru í L-laga rými sem nýtist vel. Eldhúsið er með hvítri innréttingu, flísalagðir veggir í kringum innréttinguna. Uppþvottavél og ísskápur fylgja með. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, sturta og innrétting.
Parket er á gólfum.
Sér geymsla fylgir íbúðinni.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallaranum.
Sameiginleg reiðhjólageymsla er á baklóð.
Gler og gluggar eru nýjlegir í íbúðinni, skipt var um þá 2023
Sameign var máluð og sett nýtt teppi 2016. Nýleg rafmagnstafla í sameign.
Fallegur bakgarður er fyrir aftan húsið með sameiginlegum geymsluskúr. Garðurinn var tekinn í gegn 2016, skipt var um gras, hellur og nýtt grindverk sett.
Afhending getur orðið fljótlega
.
Hér er um að ræða huggulega íbúð á góðum stað í miðbænum sem hefur mikinn sjarma. Íbúðin hefur verið í langtíma útleigu hjá núverandi eiganda ásamt skammtímaleigu áður og hefur gefið góðar tekjur. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.