Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigríður Jónasdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1997
svg
166,1 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Eldra timburhús í grónu hverfi að Birkigrund 29, Selfossi til sölu.
Alls er húsið 166,1 fm, íbúðin sjálf er 126,7 fm og bílskúrinn 39,4 fm. Þá hefur verði byggður við stór sólskáli við húsið sem er ekki inn í fermetratölunni.
Þrjú svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Sjónvarpsrými með útgengi í sólstofu.
Vel skipulagt og frábærlega staðsett hús í Grundarhverfinu á Selfossi, stutt í alla helsu þjónustu.


Nánari lýsing

Inngangur með ljósu flísum á gólfi, útidyrahurð með glugga ásamt stórum glugga við hlið hurðar sem gerir inngang mjög bjartan og veitir mikilli birtu inn í húsið.
Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Hvít innrétting með viðarbekkjum og bláum mosaikflísum á milli efriskápa og bekkja. Einnig eins skápar á vegg í borðstofu.
Við enda stofu eru stórir og bjartir gluggar sem veita mikilli birtu inn í allt rýmið. Ljóst parekt á gólfi.
Sjónvarpsrými/hol með ljósu parketi og útgegni í stóran sólskála með viðargólfi.
Þrjú svefnherbergi, eitt stærra með lausum skáp og tvö minni, parekt á gólfum.
Baðherbergi með stórum glugga,sturtuklefa, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með flísum á gólfi, úr því er gengið inn í litla geymslu og bakinngang sem er með ljósum viðarpanil á veggjum og flísum á gólfi.
Bílskúr er mjög stór með gluggum á endavegg og einni hlíð hans.
 
Allar frekari upplýsingar veitir Magnús Davíð Norðdahl löggiltur fasteignasali í síma 868-2989, eða gegnum tölvupóstfangið [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Bjartur fasteignasala

Bjartur fasteignasala

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur
Bjartur fasteignasala

Bjartur fasteignasala

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur