Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
105,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Opið hús: 11. ágúst 2026
kl. 17:30
til 18:00
Lýsing
OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 11. ÁGÚST KLUKKAN 17:30-18:00
Aron Bjarnason aðstoðarmaður fasteignasala hjá Betri Stofunni fasteignasölu kynnir Lágaleiti 3:
Einstaklega fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík. Húsið er byggt árið 2019 og er teiknað af Arkþing Nordic arkitektastofu. Íbúðin er skráð 106 fm og er á jarðhæð með verönd. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, baðherbergi og þvottahús. Í kjallara hússins er rúmgóð sérgeymsla og sér bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Nánari lýsing á eigninni:
Forstofa með skápum og gangur. Parket er á gólfum í alrými.
Stofa og borðstofa eru til vinstri þegar komið er inn og mynda saman bjart og fallegt rými með útgengi út á verönd.
Eldhúsið er í sama rými og stofan. Það er með eldhúsinnréttingu ásamt eyju sem er hönnuð af GKS með góðu skápaplássi og vönduðum tækjum.
Hjónaherbergi er á gangi ásamt barnaherberginu, það er rúmgott með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi er við hlið hjónaherbergisins.
Baðherbergið er flísalagt með flísum frá Marazzi og með walk-in sturtu. Upphengt salerni og handklæðaofn. Baðinnrétting með vaski og speglaskáp.
Þvottahús er við hlið eldhússins og er flísalagt. Það er með borðplötu og vaski, innréttingu með aðstöðu fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Útdraganleg þvottahengi eru í þvottahúsinu.
Geymsla er rúmgóð og er að finna í kjallara hússins.
Bílastæði – sér bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Á sameiginilegri lóð er fallegur og snyrtilegur inngarður með leiksvæði, göngustígum ásamt opinni hjóla og vagnageymslu. Í göngufæri við íbúðina eru bæði leik- og grunnskólar, veitingastaður, Kringlan og Austurver þar sem hægt er að sækja alla helstu þjónustu.
Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um að velja saman efni og liti á innréttingum, flísum og borðplötum. Þessa snyrtilegu og fallegu íbúð er vert að skoða, hafið endilega samband til að bóka skoðun.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Aron Bjarnason aðstoðarmaður fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti á [email protected]
Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða með tölvupósti á [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. nóv. 2021
55.450.000 kr.
64.000.000 kr.
105.8 m²
604.915 kr.
6. des. 2019
55.400.000 kr.
1.510.950.000 kr.
2230.7 m²
677.343 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026