Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Skúlagata 40

101 Reykjavík

69.900.000 kr.

823.322 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003513

Fasteignamat

73.650.000 kr.

Brunabótamat

48.310.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
84,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 13. ágúst 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Skúlagata 40, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 09 09 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 13. ágúst 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Rúmgóð og björt 2ja herbergja útsýnisíbúð á 9. hæð (íbúð 901) í góðu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri auk sérmerkts bílastæðis í upphituðum bílakjallara við Skúlagötu 40. Húsvörður er starfandi í húsinu. Í sameign er aðstaða með heitum potti, sauna og þrektækjum. Stór sameiginlegur samkomusalur er í húsinu sem íbúar geta fengið til afnota gegn vægu gjaldi. Næg bílastæði eru á lóðinni og búið er að setja upp tvö sér bílastæði með rafmagnshleðslustöð á bílaplani. Í bílakjallara er mjög góð sameiginleg bílaþvottaaðstaða fyrir íbúa. Félagsmiðstöðin VItatorg er í fimm mínútna göngufjarlæð að Lindargötu 59, en þar er hægt að vera í áskrift með heitan mat í hádeginu og njóta starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar 59 https://reykjavik.is/lindargata-59 . Kaupandi þarf að vera í Félagi eldriborgara.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 84,9fm. og þar af er bílastæði í bílakjallara 15fm. 

Nánari lýsing

Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi, góð tenging við eldhús. Fallegt útsýni er úr stofunni. Útgengt er út á útsýnissvalir úr stofunni. 
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, efri og neðri skápar með flísum á milli, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.  
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Baðherbergi með innangengri sturtu, snyrtileg innrétting, vaskur, salerni og dúkur á gólfi.  
Þvottahús/geymsla innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél, upphengdar hillur og dúkur á gólfi. 
Bílastæði er sérmerkt í upphituðum bílakjallara merkt nr. 31 fylgir eigninni.

Geymsla í sameign: Hægt er að leigja auka geymslu gegn hóflegu gjaldi.

Sameignin hefur verið mikið endurnýjuð og vel við haldið. Nýlega var skipt um gler í sameigninni og settir upp nýir dyrasímar.
Lóðin er falleg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir og næg bílastæði eru á lóð hússins Klapparstígs megin og einnig neðan húss Skúlagötumegin.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu [email protected]
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík