Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Vista
einbýlishús

Virkisás 17

221 Hafnarfjörður

Tilboð

Fasteignanúmer

F2523420

Fasteignamat

162.250.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
214,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Virkisás 17 – Glæsilegt einbýlishús á einni hæð

Virkisás 17 er glæsilegt og afar vel skipulagt einbýlishús á einni hæð þar sem vandað hefur verið til verka í hvívetna. Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með fallegri álklæðningu. Um er að ræða 214,5 fm eign samkvæmt fasteignamati. Þar af er bílskúr 39,8 fm og íbúðarhlutinn 174,7 fm.

Efnisval og búnaður:
Gegnheilt Herringbone parket frá Ebson, lagt af Fasteignafegrun
Flísar frá Álfaborg og Porcelanosa
Sérsmíðaðar innréttingar frá Nordiska í Svíþjóð
Loftskiptakerfi í öllu húsinu
Loftadúkur frá Pons
Sonos hljóðkerfi falið á bak við loftadúk í stofu, eldhúsi og sjónvarpsholi
Salerni, vaskar og hreinlætistæki frá Ísleifi
Siemens heimilistæki
Grenton heimiliskerfi (snjallhúsalausn)
Schüco álgluggakerfi
Möguleiki á rafstýrðum gardínum í öllum gluggum ásamt LED-lýsingarlausnum

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegum fataskáp. Frá forstofu er innangengt í bílskúr.
Alrými eignarinnar er einstaklega bjart og glæsilegt með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum. Þar sameinast stofa, borðstofa og eldhús í opnu og fallegu rými.
Eldhúsið er rúmgott með stórri eyju, miklu vinnuplássi og góðu skápaplássi.
Í svefnherbergisálmu eru tvö barnaherbergi og baðherbergi með glæsilegri „walk-in“ sturtu. Frá baðherberginu er útgengt í garð eignarinnar.
Hjónasvítan er afar rúmgóð með fataherbergi og sér baðherbergi.
Sjónvarpshol er sérstaklega veglegt, alls 25,3 fm að stærð, og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Bílskúrinn er rúmgóður og bjartur með góðum gluggum og mikilli lofthæð.

Lóðin: er glæsileg og hefur verið vel hönnuð. Fallegir steyptir veggir umlykja eignina og stór verönd hefur verið útbúin. Gert er ráð fyrir bæði heitum og köldum potti á veröndinni. Innkeyrsla og bílaplan eru steypt. Eignin stendur á rúmgóðri og vel staðsettri lóð í hinu vinsæla og ört vaxandi hverfi Áslandi 4 í Hafnarfirði. Þar er stutt í leikskóla og grunnskóla, Í nágrenni eignarinnar eru vinsælar göngu- og útivistarleiðir um Helgafell sem hefur á síðustu árum orðið eitt eftirsóttasta útivistarsvæði Hafnarfjarðar. Stutt er í svæðið þar sem fjölskyldur og útivistarfólk njóta einstakra gönguleiða og stórkostlegs útsýnis yfir höfuðborgarsvæðið. Hvaleyrarvatn er svo í aðeins örfárra mínútna fjarlægð og býður upp á fjölbreytta útivist allt árið um kring, svo sem göngur, hlaupaleiðir, hjólreiðar og náttúruupplifun.
Báðar þessar náttúruperlur eru í næsta nágrenni og gera staðsetninguna sérstaklega eftirsóknarverða fyrir þá sem kunna að meta útivist og fallegt umhverfi.

Hér er um að ræða einstaklega glæsilega eign þar sem gæði, hönnun og staðsetning fara saman. Eign sem sannarlega er vert að skoða.

Nánari upplýsingar veita:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða [email protected]
Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]


Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

img
Stefán Rafn Sigurmannsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
img

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. júl. 2025
90.450.000 kr.
149.000.000 kr.
10101 m²
14.751 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone

Stefán Rafn Sigurmannsson

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði