Lýsing
Við lokum aldrei!!!
Sérlega glæsilegt fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með stakstæðum 46m2 bílskúr, eignin er samtals 185,6m2.- Frábær staðsetning og stutt í skóla og verslanir.
- KA-svæðið rétt við hliðina.
- Búið er að skipta um nær allar innréttingar, s.s. eldhús, baðherbergi og þvottahúsi, upphaflegir en góðir skápar í hjónaherbergi.
- Allar innihurðir nýlegar.
- Gólfhiti í öllu húsinu.
- Mjög vandað vinylparket á gólfi í öllum rýmum.
- Utanhúss og á pallinum er vandað Philips Hue ljósastýringarkerfi sem hægt er að stilla á fjölbreyttan hátt.
- Nýlega yfirfarið og endurbætt þak.
Forstofa: Vinylparket á gólfi, forstofan er aðskilin stofu með léttum veggjum sem klæddir eru hljóðvistarplötum, þar er fatahengi.
Stofa/ borðstofa: Mjög bjart og skemmtilegt rými, vinylparket á gólfi, úr borðstofu er gengið út á nýjan vandaðan um 70m2 sólpall með góðum skjólveggjum, þar er heitur pottur og lagnir fyrir sturtu og kaldan pott/ker. Rafmagn (tenglar og rofar) eru í veggjum á palli ásamt Philips Hue ljósastýringarkerfi.
Eldhús: Er afar vel skipulagt, hvítsprautuð innrétting frá HTH með góðu vinnuplássi, stór búrskápur og áhaldaskápur. Vönduð heimilistæki frá Siemens, tveir ofnar, annar þeirra er einnig með innbyggður örbylgjuofni, spanhelluborð og stállitur háfur. Vönduð blöndunartæki og stálvaskur í eldhúsi.
Herbergi: Eru þrjú vel rúmgóð og er stór skápur í hjónaherbergi, vinylparket á gólfum.
Þvottahús: Mjög stórt og afar gott með tilliti til vinnuhagræðis og stór vandaður stálvaskur, vinilparket á gólfum, innbyggðgur aukaíssápur og einnig innbyggður frystiskápur. mjög gott skápapláss, hvítar hurðir og skúffuforstykki, útgengt á bílastæði og í bílskúr úr þvottahúsi.
Inn af þvottahúsi er snyrting, vinylparket á gólfi, hvít hreinlætistæki, salerni, handlaug og innrétting.
Baðherbergi: Vinilparket á gólfi, í sturtu eru ljósar flísar á gólfi og einnig eru ljósar flísar á veggjum upp í loft, baðkar og sturta með glervegg. Hvít handlaug og vegghengt salerni, innrétting spónlögð hnota. Vönduð innnfelld blöndurnartæki eru í sturtu og við baðkar.
Bílskúr: Rúmgóður og talsvert breiður sem gerir að verkur að gott er að vinna í honum. Hillur á veggjum og vinnuborði, gólf lakkað, bílaplan er hellulagt.
Garður er vel gróin og hiti er í hluta af stéttum og bílaplani.
Annað:
- Þak íbúðarhúss var nýlega yfirfarið og skipt um nokkur borð í klæðningu, pappa og járn og flasningar, einnig voru settir nýjir loftstúður á þakið til að bæta enn frekar öndun um það.
- Húsið er nýlega málað að utan.
- Hiti er í hluta af stétt og á bílaplani
- Staðsett á vinsælum stað á Brekkunni.
- Lóð var hækkuð upp, jöfnuð og nýjar þökur settar á.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.