Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
65 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Opið hús: 16. ágúst 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Skyggnisbraut 5, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 03 03. Eignin verður sýnd sunnudaginn 16. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi með rúmgóðum suðursvölum með svalalokun og sérmerktu bílastæði í bílakjallara á eftirsóttum stað í Úlfarsárdal.
- Þriðja hæð í lyftuhúsi
- Rúmgóðar suðursvalir með svalalokun
- Sérmerkt bílastæði í bílakjallara
- Bjart og opið alrými
- Stutt í helstu þjónustu
Forstofa með fataskáp.
Eldhús og stofa mynda bjart og opið alrými með góðu plássi fyrir borðstofu og setustofu. Frá stofu er útgengt út á rúmgóðar suðursvalir með svalalokun þar sem njóta má sólar stóran hluta dags.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er snyrtilegt með sturtu, innréttingu og þvottaaðstöðu.
Sérgeymsla er í sameign og íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Tvær vagna og hjólageymslur.
Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði. Fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni gera staðsetninguna einstaklega eftirsóknarverða.
Birt stærð samkvæmt HMS 65 fm2
Hentar vel fyrstu kaupendum eða pari.
Nánari upplýsingar veita:
Sara Wium Hermannsdóttir astmf. í S: 891-6193 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. feb. 2023
33.550.000 kr.
57.700.000 kr.
65 m²
887.692 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026