Opið hús - Hringið í síma 7751515 ef þið viljið skoða eignina sem getur verið laus í byrjun september. Jason Ólafsson - [email protected]
Lýsing
Eignin er laus í byrjun september og húsgögn og innbú geta fylgt með.
Húsið er hluti af Hafnartorgi, nýlegum og glæsilegum byggingum sem setja nýja svip á miðbæinn við höfnina. Gengið er inn í stigaganginn frá göngugötu milli húsanna en einnig ná bæði stigi og lyftur niður í bílakjallarann undir húsunum. Bílakjallarinn tengist Hörpu bílakjallara. Íbúðin er glæsileg, en vandað efnisval, glæsileg hönnum, mikil lofthæð og stórir gluggar einkenna íbúðina sem og húsið allt. Komið er inn í rúmgótt anddyri með stórum fataskáp og þvottahúsi á vinstri hönd. Þaðan er komið inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Sjónvarpsrými er búið að breyta í svefnherbergi. Glæsileg innrétting er á vegg og í eldhúsi og eyja með helluborði, innfelldri viftu og innbyggðum vínkæli. Öll tæki í eldhúsi fylgja, þar með talið ísskápur og uppþvottavél. Stórir og bjartir gluggar setja mikinn svip á rýmið og ásamt mikilli lofthæð gerir þetta rýmið einstaklega vistlegt. Úr stofu er gengið út á vestur-svalir með tréklæðningu á gólfi og frá þeim er útsýni til sjávar. Hjónaherbergi er rúmgott og með miklu skápaplássi. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi. Marmaraflísar eru á gólfi þvottahúss og gólfi og veggjum beggja baðherbergja. Innréttingar á böðum og eldhúsi eru glanshvítar en fataskápar eru hvítir. Rekstraraðilar sjá um rekstur og viðhald bílakjallarans, þar sem hægt er að fá leigt stæði, Margvíslegar útfærslur eru á leigusamningum sem ætti að koma til móts við þarfir hvers og eins. Á gólfum íbúðarinnar er dökkleitt „rustik“ parket. Allt efnisval og frágangur er sérlega vandað. Vel staðsett, einstaklega glæsileg eign þar sem vandað hefur verið til verka.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.