Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - San Cayetano

953 Spánn - Costa Blanca

32.900.000 kr.

378.161 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F1051208

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
87 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Í LITLU FJÖLBÝLI* *2 EÐA 3 SVEFNHERBERGI* *EINKASTÆÐI OG GEYMSLA Í KJALLARA* SJARMERANDI SPÆNSKUR BÆR NÁLÆGT STRÖNDUM MAR MENOR OG GLÆSILEGUM GOLFVÖLLUM*


Fallega hannaðar 2ja / 3ja svefnherbergja og 2 baðherbergja íbúðir, umkringdar stórum grænum svæðum, sundlaugum og líkamsræktaraðstöðu. Örskammt frá ströndum Murcia og á einu hagstæðasta verði á spænska fasteignamarkaðnum í dag. Íbúðir á jarðhæð eru með sérgarði en þakíbúðir eru með glæsilegum þaksvölum. San Cayetano er dæmigerður spænskur bær, aðeins 10 mínútur frá San Javier og ströndum Mar Menor. Öllum íbúðum fylgir sérstæði og geymsla í kjallara. Stórir sameiginlegir garðar með tveimur stórum sundlaugum og líkamsræktaraðstöðu.

Aðeins 10–15 mínútna akstur til San Javier, fallegu stranda Mar Menor og gamla bæjarins í Los Alcázares, sem er fullur af karakter og sjarma, með smábátahöfn og notalegri göngugötu við sjávarsíðuna.

Einnig eru fjölmargir golfvellir í nágrenninu, þar á meðal Roda Golf, Mar Menor Golf, Serena Golf, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartín og fleiri.
Um það bil 60 mínútna akstur til Alicante og um 25 mínútur til Cartagena, líflegrar spænskrar borgar.

Nánari upplýsingar:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, [email protected], sími 0034 615 112 869 
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected], sími 00354 893 2495


NÁNARI LÝSING:
Rúmgóðar og vel hannaðar íbúðir í litlu fjölbýli. 2–3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, með eldhúsi, stofu og borðkrók í vel skipulögðu opnu rými. Allar íbúðir eru með rúmgóðum svölum/veröndum. Íbúðir á efstu hæð eru einnig með stórum einkaþaksvölum en íbúðir á jarðhæð eru með sérgarði, sumar hverjar með sérstaklega rúmgóðu útisvæði. Öllum íbúðum fylgir sérstæði og geymsla í kjallara. Sameiginlegt svæði með frábærri aðstöðu, þar á meðal tveimur sundlaugum, líkamsræktaraðstöðu og fallegum grænum svæðum.

VERÐ miðað við gengi 1EVRA=145ISK.
2 svefnherbergi / 2 baðherbergi frá €226.900 (ca. 32.900.000 ISK)
3 svefnherbergi / 2 baðherbergi frá €246.900 (ca. 35.800.000 ISK)


Íbúðir á jarðhæð eru með einkaverönd/einkagarði.
Íbúðir á efstu hæð eru með stórum einkaþaksvölum.

Áætluð afhending: mars 2028

Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Mar Menor svæðið er mjög vinsæll sumarleyfisstaður og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Mar Menor,

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.