Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1985
svg
337,3 m²
svg
0 herb.
svg
4 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Urðarlaut í Flóahreppi. Stórt einbýlishús með stórum bílskúr og tveir sumarbústaðir. Alls 337,3 fm og 8,2 ha eignarland.
Mögleiki á leigutekjum af sumarbústöðum.
Seljendur skoða að taka ódýra eign á Selfossi upp í kaupin.

Stórt og veglegt einbýlishús byggt 2016, timburhús, klætt með bárujárni og standandi timburklæðningu. 170,1 fm. Allt mjög vandað og fínt.
Bílskúr, sambyggður, 108,4 fm
Sólpallur með gróðurhúsi.
Sumarhús byggt 1985 36,8 fm.
Gestahús byggt 1993 22 fm.
Samtals 337,3 fm.
Eignarland 8,2 ha. Liggur meðfram Skeiðavegi. Fallegt umhverfi og mikil fjallasýn.


Innra skipulag íbúðarhúss. Forstofa með fataskáp. Stórt sjónvarpshol. Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Mjög stór eldhúsinnrétting með eyju. Búr inn af eldhúsi. Góðir útsýnisgluggar úr borðstofu.  Rennihurð úr stofu á sólpall með góðu gróðurhúsi og heitum potti. Tvö svefnherbergi. Baðherbergi með sturtu. Hjónasvíta með stóru fataherbergi og sér baðherbergi með baðkari sturtu og innréttingu. Hurð út á sólpall. Á gólfum hússins er flísaparket. Hiti er í gólfum og innfelld lýsing.
Þvottahús með stórri innréttingu og gönguhurð í bakgarð. Innangengt í bílskúr úr þvottahúsi.

Bílskúr er flísalagður og með uppteknum loftum Vinnuherbergi innst í skúrnum og tæknirými.

Varmadæla, vatn í vatn, sem hefur reynst mjög hagstæð.

Sumarhús 36,8 fm. forstofa, eldhús, stofa/herbergi í opnu rými og tvö tvíbreið rúm. Baðherbergi með sturtu. Hurð úr stofu á sólpall. Varmadæla loft í loft. Allt snyrtilegt

Gestahús 22 fm  Eldhús og stofa/herbergi í opnu rými og tvíbreytt rúm. Baðherbergi með sturtu. Allt snyrtilegt.

Seljendur voru komnir með rekstrarleyfi fyrir sumarhúsin en það er ekki virkt í dag.

Landið er allt gróið og mosavaxið hraun. Sutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands. Fallegt útsýni m.a. til Heklu, Eyjafjallajökuls og Tindfjalla.

Um 15 mín akstur á Selfoss og 20 mín á Flúðir.

Leiðarlýsing: Ekið er í austur frá Selfossi og beygt af þjóðvegi 1 upp Skeiða- og Hrunamannavegi (vegur nr. 30). Eftir ca 3 km er skilti til hægri merkt Urðarlaut.

Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected] s. 497-1155
Sjón er sögu ríkari. Bókið einkaskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  


 

img
Snorri Sigurfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
img

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum