Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álalind 1

201 Kópavogur

79.900.000 kr.

884.828 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2362547

Fasteignamat

77.100.000 kr.

Brunabótamat

66.490.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
90,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 15. ágúst 2026 kl. 12:30 til 13:00

Opið hús: Álalind 1, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd laugardaginn 15. ágúst 2026 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Bjarta og fallega rúmgóða 3ja herbergja íbúð með stæði í lokuðum bílakjallara í góðu lyftuhúsi í Lindahverfinu í Kópavogi. Í íbúðinni eru tvö góð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, sér þvottaherbergi, forstofa og gott alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu. Í íbúðinni eru eikar innréttingar sem halda fallegu birtustigi í henni. Góðir fataskápar sem ná upp í loft eru í báðum svefnherbergjunum og i forstofu, einnig er eldhúsinnrétting upp í loft. Fallegt ljóst vínilparket er á gólfi.
Sameign er stæði í lokaðri bílageymslu merkt B30 og geymsla 6,6 fm sem fylgja íbúðinni. 
Lindahverfið er sérlega vel staðsett hvað varðar nálægð við alla helstu þjónustu. Smáralind, Smáratorg, Krónan og Elko í Lindum og margt annað er í nánasta nágreni.


Allar nánari upplýsingar veitir Magnús Þórir Matthíasson í síma 895-1427 eða [email protected]

*** Smellið hér til að sækja söluyfirlit ***

Samkvæmt Þjóðskrá Ísland telur eignin 90,3 fm og þar af er sér geymsla íbúðar 6,6 fm.
Fasteignamat 2026 er 75.800.000 kr.

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 8951427,  [email protected]


Nánari lýsing eignar: 
Komið er inn í anddyri á jarðhæð með mynddyrasímakerfið sem tengt er upp í íbúðina. Fyrir innan anddyrið er lyfta og stigagangur sem ganga upp að íbúðinni og niður í bílakjallarann. 
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og tvöföldum fallegum fataskáp sem nær upp í loft. 
Eldhús er með innréttingu á einum vegg með neðri skápum og efri skápum sem ná upp í loft ásamt eyju. Opið er frá eyjunni yfir í stofurýmið. Innréttingin er falleg í eikarlit með svartrj borðplötu. Frístandandi háfur er yfir eldavélinni í eyjunni. Barborð er við eyjuna. 
Borðstofa og setustofa er opið frá eldhúsinu yfir í stofuna. Stofurýmið rúmar vel bæði setustofu og borðstofu. Fallegt vínilparket er á gólfi. Útgengi er út á skjólgóðar vestursvalir. 
Baðherbergi er með fallegum ljósum 60 x 60 flísum á gólfi og á þremur veggjum af fjórum. Hvít innrétting er undir vaski og speglaskápur er á vegg fyrir ofan vask. Handklæðaofn er á vegg. Sturta er beint á gólf með glervegg. Salernið er upphengt. 
Þvottahús er innan íbúðar. Flísar eru á gólfi og vinnuborð er á vegg. 
Svefnherbergin eru tvö en bæði herbergin eru með fallegu vínilparketi á gólfi. Tvöfaldur fataskápur er í barnaherbergi og sexfaldur fataskápur er í hjónaherbergi. 
Sér geymsla í sameign fylgir íbúðinni en hún telur 7,9 fm. 
Bílageymsla er í kjallara en stæði í lokaðri bílageymsll fylgir merkt B30.
Hjóla- og vagnageymsla eru í sameign. 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson lögg. fasteignasali í síma 895-1427 eða [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. nóv. 2018
18.350.000 kr.
47.100.000 kr.
90.3 m²
521.595 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík