Lýsing
Um er að ræða afar glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum sem er tæplega 500 fermetrar að stærð. Húsið er með 5 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, 2 gestasalernum, 3 veglegum stofum, tvöföldum bílskúr, auk sólskála. Þá eru tvö anddyri í húsinu.
Neðri hæðin er 375 fm, þar af er bílskúrinn 85 fm. Efri hæðin er skráð 92 fm, en grunnflötur þeirrar hæðar er töluvert stærri.
Nánari lýsing:
Jarðhæð:
Bæði anddyri eru glæsileg og mjög rúmgóð með stórum fataskápum. Flísar eru á gólfum og gólfhiti.
Verulega rúmgott eldhús með eyju, steinn er á borðplötum og búr er innaf eldhúsi.
Tvennar glæsilegar stofur eru á hæðinni, auk sólskálans en þar er sturta, heitur pottur og saunaklefi. Stofurnar tvær eru annars vegar sérlega glæsileg borðstofa með mikilli lofthæð og hins vegar stór arinstofa með fallegri gluggasetningu.
Hjónasvítan er með fataherbergi og stóru baðherbergi með bæði sturtu og baðkari.
Þá eru tvö salerni á hæðinni, til viðbótar við baðherbergið sem er í hjónasvítunni.
Efri hæð:
Úr borðstofunni er hringstigi sem leiðir upp á efri hæð hússins.
Þar er sjónvarpsstofa með aðgengi út á svalir sem snúa í suður. Einstakt útsýni er af svölunum. Arinn er í sjónvarpsstofu.
Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi, öll með sér svalir.
Baðherbergið á hæðinni er með góðri innréttingu og sturtu.
Þá er þvottahús á efri hæðinni og lítil geymsla.
Bílskúrinn er tvöfaldur og er 85 fm. Hann er með góðum gluggum og steyptu gólfi.
Allar gluggakistur hússins eru sérlega djúpar og flísalagðar. Á stofum, eldhúsi og herbergjum er gegnheilt parket. Flísar eru á votrýmum og forstofum. Gólfhiti er á jarðhæðinni. Ofnar eru á annarri hæð.
Eignin er staðsett innst í botnlanga og er með bílastæði fyrir 4-5 bíla.
Þetta er verulega vönduð eign á frábærum stað í Garðabæ þar sem hvergi hefur verið til sparað við efnisval og frágang. Áhugasömum er bent á að bóka skoðun. Eignin verður eingöngu sýnd í einkaskoðunum.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu [email protected].
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.