Lýsing
Miklaborg kynnir:
Björt og vel staðsett fjögurra herbergja íbúð í þríbýli í gamla vesturbænum. Eignin er á tveimur hæðum með sérútgang út í garð.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með fatahengi. Gestasalerni á hægri hönd. Rúmgott eldhús með fallegri eldri innréttingu, nýlegum eldunartækjum og tengi fyrir uppþvottavél. Björt stofa með stórum gluggum sem vísa í suður. Tvö góð barnaherbergi eru á efri hæð. Upprunalegir listar á dyrakörmum, gólfi og lofti á hæðinni. Gengið er niður hringstiga á neðri hæðina. Á neðri hæð er hjónasvíta með fataherbergi og rúmgóðu baðherbergi með baðkari, fallegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gengið er frá hjónasvítu út í sólríkan, aflokaðan garð í suður. Lítil sérgeymsla fylgir með íbúðinni auk sameiginlegrar hjólageymslu og geymslulofts.
GÓLFEFNI: Gegnheilt viðarparket á flestum gólfum á efri hæð nema baði og eldhúsi en þar eru flísar. Neðri hæð er með dúk á svefnherbergi og flísar á baði.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða [email protected]