Lýsing
Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Nýjar íbúðir við Breiðhöfða 15-19 sem njóta góðrar birtu með stórum gluggum og mikilli lofthæð. Tengingar við umhverfi með hjóla- og göngustígum og framtíðarsýn Borgarlínu.
Íbúðunum er skilað fullbúnum með vönduðum innréttingum og gólfefnum frá Parka. Allar innréttingar og skápar ná upp í loft sem skapar glæsilegt yfirbragð og hámarkar geymslupláss. Eldhús eru útbúin vönduðum Siemens-raftækjum þar með talinn innbyggður ísskápur og uppþvottavél, steinn er á borðplötum innréttinga. Flestum íbúðum fylgir bílastæði í bílakjallara.
Íbúð 206 er fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð, skráð stærð 110,2 fm þar af geymsla 14,1 fm. Íbúðin skiptist í alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi og svo sér þvottaherbergi. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu, B17.
Til afhendingar fljótlega.
Pantið skoðun hjá Ingimundi lgf. í síma 867 4540 eða [email protected]
Myndir í auglýsingu geta verið úr öðrum íbúðm en sú sem er auglýst.
Nýjar glæsilegar nýjar íbúðir við Breiðhöfða 15-19. Hverfið er skipulagt með það að leiðarljósi að öll helsta þjónusta sé í göngufæri. Þá tengist það helstu samgönguæðum borgarinnar. Stutt er í græn svæði, göngu- og hjólastíga auk þess sem almenningssamgöngur verða öflugar með fyrirhugaðri borgarlínu. Borgarhöfðinn býður upp á líflegt borgarumhverfi þar sem þægindi, gæði og framtíðarsýn fara saman.
Byggingaraðili verkefnisins er Skuggi.
Nánari upplýsingar gefa:
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða [email protected]
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða [email protected]
Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772 2661 eða [email protected]
Kartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663 4392 eða [email protected]
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897 0634 eða [email protected]