Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Laugarnesvegur 67

105 Reykjavík

84.900.000 kr.

889.937 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2017235

Fasteignamat

84.350.000 kr.

Brunabótamat

51.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1942
svg
95,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 20. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:20

Opið hús að Laugarnesvegur 67 í Reykjavík kl 17:00 fimmtudaginn 20. ágúst

Lýsing

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi við Laugarnesveg 67 í Reykjavík. Um er að ræða einstaklega skemmtilega og vel skipulagða eign á tveimur pöllum með miklum karakter og björtum rýmum á eftirsóttum stað í Laugardalnum.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og fjölbreytta þjónustu auk þess sem Laugardalurinn og öll sú útivistar- og afþreyingaraðstaða sem þar er að finna er í næsta nágrenni.

Birt stærð eignarinnar er 95,4 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands.

Eignin skiptist í forstofu, miðrými/sjónvarpshol, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Eigninni fylgir sérgeymsla í kjallara auk hlutdeildar í sameiginlegu þvottahúsi, hjólageymslu og garði.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða [email protected]

Nánari lýsing
Forstofa
með fatahengi og skóskáp, flísar á gólfi.
Miðrými/sjónvarpshol með rúmgóðum fataskáp. Frá miðrými er gengið upp í bjart alrými eignarinnar, flísar á gólfi.
Eldhús opið inn í stofu og borðstofu með innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð, spanhelluborði og háfi. Barborð er hluti innréttingar og tengi fyrir uppþvottavél, gegnheilt parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og skemmtilegu alrými með stórum gluggum sem veita góða birtu, gegnheilt parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi rúmgott og bjart með innbyggðum fataskápum auk góðs skápapláss við vegg og gluggum á tvo vegu, flísar á gólfi.
Baðherbergi rúmgott með innréttingu, handlaug, salerni, handklæðaofni og innangengri sturtu. Innbyggður skápur fyrir þvottavél og þurrkara auk tengis fyrir vask í þvottaaðstöðu. Sturta og salerni hafa verið endurnýjuð, flísalagt í hólf og gólf.
Sérgeymsla í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla eru í kjallara.

Húsgjöld eignarinnar eru 13.356 kr. á mánuði og innifela almennan rekstur húsfélags og rafmagn í sameign.

Eignin er einstaklega vel staðsett í Laugardalnum þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og veitingastaði auk fallegra göngu- og hjólaleiða. Í Laugardalnum má meðal annars finna Laugardalslaug, Laugardalshöll, Grasagarð Reykjavíkur, Skautahöllina og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða á [email protected]
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. mar. 2022
51.450.000 kr.
70.000.000 kr.
95.4 m²
733.753 kr.
28. ágú. 2018
42.000.000 kr.
44.900.000 kr.
95.4 m²
470.650 kr.
30. júl. 2015
29.000.000 kr.
35.600.000 kr.
95.4 m²
373.166 kr.
15. feb. 2013
24.300.000 kr.
29.200.000 kr.
95.4 m²
306.080 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone