Opið hús: Skólavörðustígur 3, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 18. ágúst 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:30.
Lýsing
Komið er inn í húsið um snyrtilegan sameiginlegan inngang og stigahús með fallegu Terrazzo-gólfi, en aðeins er ein eign á hverjum stigapalli. Alrými íbúðarinnar er opið og stórborgarlegt þar sem fúnkisarkitektúrinn mætir nútímalegum lífsstíl í samhljómi.
Íbúðin skiptist í opið alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö rúmgóð svefnherbergi (annað með útgengt á svalir), smekklega endurnýjað baðherbergi ásamt 30,2 fm sérgeymslu í kjallara.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða á [email protected]
Eignin Skólavörðustígur 3 er skráð sem hér segir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (FMR): Eign 223-3598, birt heildarstærð 130,6 fm, þar af er sérgeymsla í kjallara merkt 0002 skráð 30,2 fm. Lóðin er eignarlóð, 139,0 m².
Nánari lýsing:
Stigapallur: Stigahúsið er með fallegum stiga og stigapalli með Terrazzo-gólfi. Stigapallurinn er rúmgóður.
Alrými: Rúmgott, bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman í eina heild. Gluggaröðin í alrýminu er einstaklega tilkomumikil, stór og samfelldur gluggi sem teygir sig nær endilangan útvegginn. Gulu, ávalu súlurnar sem standa meðfram gluggaröðinni eru ekki einungis burðarvirki heldur þjóna sem hönnunarstef í rýminu, ramma inn mismunandi svæði og gefa íbúðinni sterkan fúnkiskarakter.
Stofa: Bjart og glæsilegt stofurými sem baðar sig í náttúrulegri birtu. Hinn stórfenglegi fúnkisgluggi, umvafinn ávölum ramma og burðarsúlum, tryggir óslitna dagsbirtu og býður upp á heillandi útsýni yfir mannlífið á Skólavörðustígnum.
Borðstofa: Staðsett í miðju alrýmisins og tengir saman stofukrók og eldhús. Rýmið stendur beint við gluggaröðina og er í frábæru flæði við heildina.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað fyrir um 4 árum á afar smekklegan hátt. Glæsileg og vel hönnuð innrétting nýtir lofthæðina vel með stórum skápum og innbyggðum tækjum. Ljósir efri skápar brjóta upp gráu tónana og gefa hlýlegan svip. Eldhúseyja stendur í miðju rýmisins með helluborði og hangandi gufugleypi yfir. Eyjan býður upp á mikið vinnupláss, hirslur og sætisaðstöðu við barborð. Bakveggurinn er klæddur líflegum vínrauðum flísum sem skapa skemmtilegan retro-kontrast við fágaðar innréttingarnar.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með fataskáp. Gengið er út á svalir úr herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp og hillum. Herbergið einkennist af glæsilegum, ávölum útvegg með fallegum ávölum glugga.
Baðherbergi: Smekklega endurnýjað. Innbyggður sturtuklefi, upphengt salerni, handklæðaofn ásamt upphengdri viðar borðplötu úr með innfelldum vaski. Upphengdur spegill með innbyggðri LED-lýsingu er fyrir ofan vask.
Geymsla: Rúmgóð 30,2 fm sérgeymsla er í kjallara hússins.
Um húsið og staðsetningu
Húsið var teiknað af Einari Sveinssyni arkitekt sem var einn af áhrifamestu arkitektum Íslands á 20. öld og gegndi m.a. starfi húsameistara Reykjavíkur um langt skeið. Einar átti stóran þátt í að móta ásýnd borgarinnar á árunum eftir stríð og teiknaði mörg af þekktustu fúnkishúsum Reykjavíkur (ásamt t.d. Borgarspítalanum). Ávalur og framstæður gluggaramminn á 2. hæð hússins er mjög dæmigert og fallegt einkenni á hans hönnun, þar sem lögð var áhersla á flæðandi línur og dagsbirtu.
Skólavörðustígur er án efa ein mest heillandi gata Reykjavíkur og býður upp á óviðjafnanlegan lífstíl. Gatan er þekkt fyrir fjölbreytt úrval af sjálfstæðum hönnunarverslunum, gullsmiðjum, listagalleríum, kaffihúsum og hágæða veitingastöðum rétt fyrir utan dyrnar.
Nánari upplýsingar veitir: Hreiðar Levý Guðmundsson, löggiltur fasteignasali Sími: 661-6021 Tölvupóstur: [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.