Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðbjörg Heimisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hnjúkamói 9 ÞAKíbúð 501 með bílskúr

815 Þorlákshöfn

129.500.000 kr.

703.040 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2538516

Fasteignamat

37.550.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
184,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 23. ágúst 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands kynnir:  Hnjúkamói 9, ÞAKíbúð 0501, Þorlákshöfn.  Ný, 152m2 þakíbúð á 5.hæð, með 3 stórum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og glæsilegu alrými þaðan sem utangengt er á suður/vestur-svalir. Íbúðinni fylgir 32,2m2 bílskúr sem innangengt er í af jarðhæð hússins.  

** Hægt er að bóka einkaskoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 ** 

Húsið er fyrsti áfangi svonefnds miðbæjarverkefnis sem verður allt hið glæsilegasta og er staðsett örstutt frá allri helstu þjónustu. 

Íbúðin verður tilbúin til afhendingar í  ágúst/september 2026.

Eignin skiptist svo:
*  Anddyri með fataskáp.  
Hurðir, úthliðar og sökklar skáps eru hvítar að lit.
*  3 stór svefnherbergi, öll með fataskápum.  Hurðir, úthliðar og sökklar fataskápa eru hvítar að lit. Stærðir skápa eru skv. teikningum.  
* * Baðherbergi er inn af  hjónaherbergi.
*  Mjög rúmgott eldhús og stofu í opnu rými.   
*  Utangengt er úr stofunni á svalir sem snúa í suður/vestur.

*  Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Arens (söluaðili, Ormsson).  Hurðir og forstykki eru hvít. Borðplötur eru plastlagðar í ljós gráum lit.   Eldhúsraftæki eru frá AEG. Ísskápur og uppþvottavél verða innbyggð.  Blöndunartæki eru frá Grohe.
*  2 baðherbergi með fallegri innréttingu frá Arens.  Innrétting á baðherbergi afhendist með speglum, skápar eru í hvítum lit, borðplötur eru harðplast. Sturta er með sturtugleri.  Blöndunartæki á baði eru frá Grohe. Vegghengt salerni frá Laufen.  Sturta með hitastýrðum blöndunartækjum ásamt sturtustöng með haus og handúðara  
Flísalögn á baði mun ná upp í loft  á tvo veggi.
* Þvottahús.  
* 32,2m2 bílskúr sem innangengt er í af jarðhæð hússins. 


*  Allar hurðir eru hvítar og yfirfelldar. Hurðar innan íbúðar verða án þröskulda.
*  Baðherbergi og þvottahús eru með flísum á gólfi og veggjum á tvo vegu, upp að lofti.  Annars staðar vantar gólfefni.   
*  Allar innréttingar eru frá Arens, (söluaðili er Ormsson ehf.) og eru í stöðluðum stærðum, skv. innréttingateikningum.
*  Ljós (kúplar) eru á baðherbergi, í þvottahúsi og í eldhúsi. Sjónvarps- og nettenglar í herbergjum.
*  Dyrasímar skv. teikningum, myndavélasími verður í íbúðinni.

*  Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.  Gólf í sameiginlegri geymslu og sér-geymslum verður lakkað.
*  Gólf í stigahúsi eru teppalögð.
 
Lóð:
*  Lóðarfrágangur verður í megindráttum skv. teikningum landslagsarkitekta.
*  Snjóbræðsla á göngustígum samkvæmt teikningu.
*  Bílastæði verða malbikuð og  afmörkuð með máluðum línum.   
*  Gert verður ráð fyrir að hægt verði að setja hleðslustöðvar við húsið, lagnaleið fyrir hendi.

* Á myndum í auglýsingu má sjá hugmynd að miðbæjarskipulaginu.  Hnjúkamói 9 er hús merkt A2 á teikningu **

3-d myndir af íbúð í auglýsingu eru til glöggvunar á útliti innréttinga en ekki skipulagi.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/ 

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og á www.hamingjuhofn.is

img
Guðbjörg Heimisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Suðurlands
Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone
img

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn