Opið hús: Þverholt 28, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 21 02 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 24. ágúst 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Egilsborgir er samheiti fyrir húsaþyrpingu sem nær á milli Rauðarárstígs og Þverholts og er sameiginleg fyrir húsin nr. 35,37,39 og 41 við Rauðarárstíg og nr. 20,22,24, 26,28,30 og 32 við Þverholt. Húsvarðaríbúð í eigu húsfélags. Húsvörður starfar á vegum Egilsborga húsfélags og hefur hann stöðugt þrifaeftirlit með húsum, lóð, bílageymslu og tækjabúnaði. Húsvörður annast allar smærri viðgerðir, lagfæringar og viðhald á sameign og umhirðu lóðar svo sem gróðurs. Húsvörður skal annast færslu á sorptunnum í Þverholti 22 -32 og Rauðarárstíg 41 og halda þeim hreinum, hreinsa sorpgeymslur og sjá um að sorptunnur séu hreinar. Húsvörður sér um að allt umhverfi húsa Egilsborga og bílageymsla séu sem snyrtilegast. Að vetri mokar húsvörður snjó af tröppum og gönguleiðum og fær aðstoð við hreinsun bílastæða ef með þarf.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið inn í forstofu með innbyggðum fataskápum.
Svefnherbergi I: Rúmgott með fataskápum.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi með tvöfölldum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með flísalagðri sturtu, upphengdur salerni, handklæðaofni ásamt baðinntréttingu með góðu skápaplássi, vaski og stórum spegli fyrir ofan innréttingu.
Þvottaherbergi: Innaf íbúð. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengdar hillur og skolvaskur.
Alrými: Rúmgott, opið og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og stofu. Fallegt og bjart rými með stórum gluggum og útgengi út á rúmgóðar suðursvalir sem snúa út í bakgarð.
Eldhús: Opið við borðstofu og stofu. Innrétting með góðu geymslu- og vinnuplássi. Innbyggður ísskápur og u.ppþvottavél ásamt gashelluborði og ofn í vinnuhæð.
Stofa: Rúmgóð og opin við eldhús.
Svalir: Rúmgóðar suðursvalir. Snúa inn í bakgarð.
Húsið: Um er að ræða snyrtilegt lyftuhús þar sem aðeins tvær íbúðir eru á hverri hæð. Sameiginlegur bílakjallari fylgir húsinu auk nokkurra bílastæða við húsið. Falleg og gróin baklóð er við húsið.
Bílskýli: Eigninni fylgir hlutdeild í stórum aflokuðu bílskýli með þvottaaðstöðu. Ekki eru sérmerkt bílastæði í bílakjallara. 8 hleðslustæði eru í bílakjallara.
Sameign: Snyrtilegur sameignagangur með lyftu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt þvotta- og þurrkherbergi. Eignin á hlutdeild í húsvarðaríbúð. Húsvörður í húsinu sem starfar á vegum Egilsborga húsfélags og hefur hann stöðugt þrifaeftirlit með húsum, lóð, bílageymslu og tækjabúnaði. Húsvörður annast allar smærri viðgerðir, lagfæringar og viðhald á sameign og umhirðu lóðar svo sem gróðurs.
Lóð: Lóðin, Rauðarárstígur 35-41/Þverholt 20-32 er 5.617 m² að stærð. Fallegur inngarður á milli húsa.
Íbúðin er mjög vel staðsett í rólegu hverfi í miðbæ Reykjavíkur með alla helstu verslun og þjónustu í nágrenninu, skóla á öllum stigum. Stutt í miðbæ Reykjavíkur með allt það sem hann hefur upp á að bjóða ásamt útivistarperlunum á Klambratúni og í Öskjuhlíðinni. Frábær og afar vinsæl staðsetning.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.