Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1915
37,6 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sérinngangur
Opið hús: 23. ágúst 2026
kl. 12:00
til 12:30
Hverfisgata 68A, 101 Reykjavík. Margrét Rós lgf, verður á staðnum og sýnir eignina sunnudaginn 23. ágúst 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu sjarmerandi og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð við Hverfisgötu 68A í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða bjarta og fallega eign í húsi byggt 1915. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, bjarta stofu, rúmgott svefnherbergi og baðherbergi. Baðherbergi og eldhús töluvert endurnýjað árið 2024, auk þess voru ofnar í íbúðinni fjarlægðir og gólfhiti lagður í staðinn. Sérinngangur er inn í íbúðina og eigninni fylgir jafnframt 7,5 m² geymsluskúr. Sameiginlegt þvottahús er í húsinu með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins. Staðsetningin er eins miðsvæðis og best verður á kosið, í göngufæri við fjölbreytta verslun, veitingastaði, kaffihús, menningu og alla helstu þjónustu miðborgarinnar. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða [email protected] *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***
Birt stærð íbúðar skv. fasteignaskrá HMS er 37,6 m², og eru þeir allir innan íbúðar. Að auki er skráður 7,5 m² geymsluskúr sem séreign.
Nánari lýsing eignar
Anddyri: Komið er inn um sérinngang í anddyri sem er opið inn í eldhús.
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápa- og skúffuplássi, borðplötu og opnum hillum. Eldunaraðstaða er með helluborði og bakaraofni.
Stofa: Björt og notaleg stofa sem snýr út að götu. Rýmið er vel nýtt og rúmar bæði setu- og borðstofuaðstöðu.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart svefnherbergi með glugga út að framgarði.
Baðherbergi: Með sturtuaðstöðu, salerni, handlaug og opnanlegum glugga.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í húsinu með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins sem íbúar hafa afnot af.
Geymsluskúr: Eigninni fylgir 7,5 m² geymsluskúr sem skráður er sem séreign samkvæmt fasteignaskrá HMS.
Endurbætur að sögn seljanda:
2024: Baðherbergi endurnýjað með nýjum flísum á gólf og veggi, nýrri sturtu, blöndunartækjum, handlaug og salerni. Ný eldhúsinnrétting sett upp ásamt nýjum bakaraofni og vaski.
Gólfhiti lagður í íbúðina og eldri ofnar fjarlægðir. Gólf íbúðar flotuð með sjónfloti. Stigi að sameiginlegu þvottahúsi steyptur upp að nýju.
2025: Húsið málað að utan. Ný þakrenna sett upp fyrir utan íbúðina.
FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR
Staðsetning
Hverfisgata 68A er einstaklega vel staðsett í hjarta Reykjavíkur þar sem líf og þjónusta miðborgarinnar eru í næsta nágrenni. Stutt er í Laugaveg, fjölbreytt úrval veitingastaða og kaffihúsa, verslanir, menningu og afþreyingu. Um er að ræða skemmtilega miðborgareign þar sem flest það sem borgin hefur upp á að bjóða er í þægilegu göngufæri.
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / [email protected]
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / [email protected]
KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. feb. 2024
35.800.000 kr.
37.000.000 kr.
37.6 m²
984.043 kr.
18. feb. 2021
23.350.000 kr.
29.700.000 kr.
37.6 m²
789.894 kr.
14. mar. 2017
17.950.000 kr.
25.900.000 kr.
37.6 m²
688.830 kr.
25. feb. 2015
13.750.000 kr.
15.000.000 kr.
37.6 m²
398.936 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026