Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Fellsmúli 11

108 Reykjavík

69.000.000 kr.

743.534 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2015514

Fasteignamat

68.100.000 kr.

Brunabótamat

46.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
92,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Miklaborg kynnir: Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í Fellsmúla 11. Góð staðsetning miðsvæðis í Reykjavík, næg bílastæði við húsið og örstutt í helstu verslun og þjónustu.


Um er að ræða rúmgóða 87,7 m² íbúð auk 5,1 m² sérgeymslu, samtals 92,8 m², með góðu og vel nýttu skipulagi. Íbúðin nýtur mikillar birtu og frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suðurs, þar sem fallegt útsýni setur skemmtilegan svip á eignina.

Húsið hefur fengið umtalsvert viðhald og endurbætur á undanförnum árum.

Forstofa er mjög rúmgóð, parket á gólfi.

Eldhús með fínni innréttingu með efri og neðri skápum. Korkflísar á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél.

Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með parketi á gólfi. Útgengi á stórar og rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvít innréttingu með efri og neðri skápum. Baðkar með sturtuhengi. Opnanlegur gluggi og handklæðaofn.

Svefnherbergisgangur er með parketi á gólfi. Opið fatahengi.

Barnaherbergi er með parketi á gólfi.

Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.

Geymsla er í sameign, 5,1 m², með hillum og opnanlegum glugga.


Helstu endurbætur á íbúð
  • Búið að skipta um alla glugga, gler og svalahurð.
  • Búið að skipta um ofna og ofnalagnir.
  • Eldvarnarhurð.


Endurbætur á sameign og ytra byrði

Húsið hefur fengið gott og reglubundið viðhald og hafa meðal annars eftirfarandi framkvæmdir verið unnar samkvæmt fyrri eiganda:

  • 2004: Þak endurnýjað.
  • 2007: Múrviðgerðir og málun.
  • 2010: Klæðning á austurgafli og nýir gluggar í endaíbúð nr. 9.
  • 2013: Nýir gluggar á suður- og vesturhlið. Nýtt gler, póstar og fög á norðurhlið.
  • 2015: Skólplögn undir húsi og utanhúss endurnýjuð og lóð drenuð.
  • 2018: Forstofa endurnýjuð, ásamt póstkössum og dyrasíma.
  • 2020: Klæðning á suður- og vesturhlið. Norðurhlið múrviðgerð og máluð. Þak málað, svalahandrið endurnýjuð og svalagólf lagfærð.
  • 2024: Stigagangur málaður og skipt um teppi. Kjallari sameignar málaður, bæði veggir og gólf.


Við húsið er stór og sameiginlegur garður með leiktækjum, sem hentar vel fyrir fjölskyldufólk. Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.


Um er að ræða bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á efstu hæð, með góðum suðursvölum og fallegu útsýni, í húsi sem hefur verið vel viðhaldið.


Nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða [email protected]

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. ágú. 2020
40.400.000 kr.
40.900.000 kr.
92.8 m²
440.733 kr.
10. nóv. 2006
15.420.000 kr.
17.500.000 kr.
92.8 m²
188.578 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík