Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
fjölbýlishús

Vindás 3

110 Reykjavík

56.200.000 kr.

968.966 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2053515

Fasteignamat

48.600.000 kr.

Brunabótamat

32.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
58 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. ágúst 2026 kl. 17:15 til 17:45

Opið hús: Vindás 3, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 08 01 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 24. ágúst 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

Lýsing

Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna:  Vindás 3, 110 Reykjavík.
Bjarta og fallega endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með suður verönd/sérafnotareit. Eignin er í heildina skráð 58 fm og skiptist í eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á hellulagða verönd, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.

Íbúðin er staðsett á vinsælum stað í góðu hverfi þar sem stutt er í flesta þjónustu, barnaskóla, leikskóla, sund, líkamsrækt, verslun og fleira.
Bókið skoðun hjá Lilja Hrafnberg  í síma 8206511, eða [email protected]


Smellið hér til að sjá myndband af eigninni

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með hvítum fataskáp.
Eldhús: Endurnýjað 2021. Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Fallegt harðparket frá Birgisson á gólfi. 
Stofa: Björt með fallegu harðparketi frá Birgisson á gólfi. Útgengi á hellulagða suður verönd sem er sérafnotareitur og heimilt að útbúa stóran afgirtan pall, allt að 3 metra frá húsinu. 
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Nýlegir fataskápar og fallegt harðparket frá Birgisson á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað 2025. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum ljósum flísum. "Walk in" sturta með svörtu sturtugleri. Vegghengt salerni, hvítur baðinnrétting með svörtum blöndunartækjum og speglaskápur með ljósi.
Geymsla: 4 fm geymsla í sameign.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla. 

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. feb. 2021
28.850.000 kr.
34.500.000 kr.
58 m²
594.828 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone