Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
lóð

Ófeigsstaðir Kinn

641 Húsavík

88.000.000 kr.

159.334 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2162230

Fasteignamat

47.552.000 kr.

Brunabótamat

113.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1935
svg
552,3 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Eignaver 460-6060

Ófeigsstaðir í Kinn, Þingeyjarsveit.

Til sölu er jörðin Ófeigsstaðir í Kinn. Jörðin er talin verða u.þ.b. 250 hektarar en ræktað land er skráð 45,2 hektarar. Á jörðinni er 8 herbergja einbýlishús ásamt fjárhúsi og hlöðu. 
Íbúðarhúsið er á tveimur hæðum, samtals 197 fm. byggt 1935 (viðbygging 1976), fjárhús 189 fm. byggt 1963 og hlaða 166,3 fm. byggð 1962.


Nánari lýsing íbúðarhús;
1.hæð:
Forstofa, flísar á gólfi og fatahengi.
Forstofuherbergi, dúkur á gólfi, skápur og hillur.
Baðherbergi, nýlega uppgert, flísar á gólfi, Fibo plötur á veggjum, sturta. 
Bakdyrainngangur, skolvasur, skápar,steypt lakkað gólf. Inntaksrými lagna.
Eldshúsið er rúmgott með eldri innréttingu, dúkur á gólfi.
Búr er inn af eldhúsi, gott geymslupláss, steypt, lakkað gólf, hillur og eldri skápar.
Forstofurými, búið er að loka þar sem áður var útihurð, fataskápur og hengi.
Þvottahús, dúkur á gólfi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, eldri innrétting, skolvaskur.
Baðherbergi, nýleg hvít innrétting, baðkar, flísar á gólfi og plötur á veggjum.
Tvær samliggjandi stofur, parket á gólfum. 
Svefnherbergi, parket á gólfi
Timburstigi upp í risið.
2. hæð;
Í risi eru fimm svefnherbergi, herbergin til vesturs eru tvö, gengið úr einu herbergi inn í hitt, þar er útgönguhurð út á litlar svalir með stiga niður á pall.
Timburgólf í herbergum, parket á gólfum en dúkur á einu þeirra.
Geymsla er undir súð.

Íbúðarhúsið er steypt en efri hæðin úr timbri og hefur hún verið einangruð og klædd utan. Einbýlishús er á sér fastanúmeri, merkt F216-2226.
Húsið er almennt í góðu viðhaldi en kominn er tími á hluta af gleri og gluggum ásamt því að sumar innréttingar og rými hússins þarfnast endurnýjunar og viðhalds.
Upprunalegt þak er á íbúðarhúsi.

Lítill geymsluskúr úr timbri er á lóðinni við húsið og er hann í ágætu lagi, rafmagn en ekki rennandi vatn.
Stórt og rúmgott malarplan er við íbúðarhúsið.
Fallegur garður og rúmgóð verönd þaðan sem er mikið og gott útsýni til allra átta.

Fjárhús og hlaða eru byggð 1962 og 1963,  steypt með bárujárni á þaki. Fjárhúsin eru illa farin enda hafa þau ekki verið nýtt til búskapar í mörg ár.
Hlaðan er í þokkalegu ástandi en ljóst er að húsin þarfnast þó-nokkurra endurbóta.
 
Jörðin er í einkasölu hjá Eignaveri. 

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671    / [email protected]
Arnar            s: 898-7011    / [email protected]

 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone