Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 3

102 Reykjavík

107.900.000 kr.

1.284.524 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532726

Fasteignamat

79.550.000 kr.

Brunabótamat

51.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
84 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Svalir

Lýsing

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 3 – Íbúð 507.

Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Tilbúin til afhendingar.

Sameignarkaup — þú fjármagnar aðeins 75% af kaupverði: 80.925.000

  • 75% verð: 80.925.000 kr.
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (8.092.500 kr.)
  • 0% leigugreiðsla í allt að 36 mánuði ef þú nýtir kauprétt innan þess tíma
  • Spurningar og svör um sameignarleiðina á s8.is/sameign

Sameignarsamningur er undirritaður samhliða kaupsamningi.

Fáðu nánari upplýsingar á sölusíðu eignarinnar, þar sem þú færð aðgang að söluyfirliti og öðrum skjölum með rafrænum skilríkjum og getur gert tilboð beint. Sendu fyrirspurn á [email protected] eða hringdu í síma 583 2000. Hafðu samband og bókaðu skoðun.

3ja herbergja þakíbúð á 5. hæð. Birt stærð er 84 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt, blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Hlíð 2.

Nánari lýsing: Fataskápar í anddyri. Gengið er úr anddyri inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir. Eldhús með eyju. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa, blöndunartæki úr byssubláu stáli og innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi með fataherbergi með svarbrúnum innréttingum með viðaráferð og svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með „walk-in“ sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð, speglaskápur með lýsingu og innbyggð blöndunartæki úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla í kjallara merkt 0033 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingarfyrirkomulagi þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.

Um Hlíðarhorn

Hlíðarhorn er 3–5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 íbúðir, 2–5 herbergja. Hverri íbúð fylgja svalir, þaksvalir eða sérafnotareitur í innri garði, og íbúðirnar eru hannaðar með tilliti til náttúrulegrar birtu og nýtingar fermetra. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og sérstök áhersla er lögð á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd álklæðningum í mismunandi litum ásamt við, með gluggum úr ál/við.

Hlíðarhorn er í 102 Reykjavík, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta við fætur Öskjuhlíðar. Þjónusta, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða og stórir vinnustaðir eru í göngu- og hjólafæri.

Bílakjallari

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er samnýttur samkvæmt deiliskipulagi. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnum íbúðum hefur verið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum; kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallarans samhliða kaupum.

Nánari upplýsingar

Á www.hlidarhorn.is má sjá allar íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni. Skilalýsing seljanda ásamt upplýsingum um hönnun og byggingu er einnig á heimasíðu verkefnisins.

Athugið

Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt, 0,3% af endanlegu brunabótamati.

Auk kaupverðs greiðir kaupandi:

  • Stimpilgjald af kaupsamningi — 0,4% við fyrstu kaup, 0,8% almennt, 1,6% hjá lögaðilum, af fasteignamati.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og öðrum skjölum — 3.800 kr. af hverju skjali.
  • Lántökugjald samkvæmt verðskrá lánastofnunar.
  • Umsýslugjald samkvæmt gjaldskrá Heima fasteignasölu.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone
Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone