Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
hæð

Hlíðarhjalli 41

200 Kópavogur

116.900.000 kr.

718.059 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2061887

Fasteignamat

104.600.000 kr.

Brunabótamat

77.380.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
162,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 27. ágúst 2026 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús: Hlíðarhjalli 41, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 27. ágúst 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og vel skipulögð neðri sérhæð á vinsælum og skjólgóðum stað í suðurhlíðum Kópavogs.

* Sérinngangur 
* Afgirtur sólpallur
* 3 rúmgóð svefnherbergi
* Sérstæði í lokuðum bílakjallara.


Nánari upplýsingar :
Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á netfanginu [email protected] og
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000, [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljend
ur

Eignin er skráð hjá HMS 162,8 fm þar af eru 31,3 fm sem samanstanda af sérbílastæði í lokuðum bílakjallara og geymslu.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpsherbergi, þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Auðvelt er að útbúa fjórða svefnherbergið úr sjónvarpsherberginu.


Nánari lýsing.
Forstofa með góðum fataskápum og flísar á gólfi.
Eldhúsið er opið og bjart, með granítborðplötum, góðu skápaplássi og flísar á gólfi.
Stofan er einstaklega rúmgóð og björt og flísum á gólfi.
Baðherbergið er með baðkari og sturtu, handklæðaofn. Flísar í hólf og gólf.
Hjónaherbergið er rúmgott og með góðum fataskápum
Barnaherbergin eru tvö eru einnig mjög rúmgóð og með fataskápum.
Sjónvarpsherbergið býður upp á fjölbreytta möguleika og mætti auðveldlega nýta sem fjórða svefnherbergið.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og flísar á gólfi.
Sérbílastæði er í lokuðum bílakjallara og geymsla er inn af bílastæðinu. Rafhleðslustöð fylgir eigninni.
Þá er sameiginleg hjólageymsla í húsinu.


Helstu framkvæmdir og endurbætur á sameign:
Gluggar á suður- og austurhlið hússins endurnýjaðir vorið 2026, ásamt útidyrahurð.
Blásarar í bílakjallara endurnýjaðir árið 2025.
Þakrennur endurnýjaðar árið 2023 
Hleðslustöð sett upp við bílastæði árið 2023.
Dúkur á bílakjallara endurnýjaður árið 2018.


Vönduð og rúmgóð neðri sérhæð á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs, með möguleika á fjórum svefnherbergjum, sérinngangi,
suðursólpalli og sérbílastæði í lokuðum bílakjallara með rafhleðslu.

Staðsetning eignarinnar er afar góð. Húsið stendur í lokuðum botnlanga við Hlíðarhjalla, í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi.
Stutt er í skóla og leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu. Þá eru frábær útivistarsvæði í Kópavogsdalnum
í næsta nágrenni og greiðar samgöngur í allar áttir, enda stutt í helstu stofnæðar.



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. sep. 2016
40.800.000 kr.
48.000.000 kr.
162.8 m²
294.840 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík