Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Grettisgata 74

101 Reykjavík

69.900.000 kr.

962.810 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2008268

Fasteignamat

65.550.000 kr.

Brunabótamat

39.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1931
svg
72,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 26. ágúst 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Grettisgata 74, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 26. ágúst 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

FALLEG, ENDURNÝJUÐ MIÐBÆJARÍBÚÐ MEÐ AUKINNI LOFTHÆÐ.
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27 og Snorri Snorrason lgf. "sími 895 2115 og [email protected]" kynnir til sölu einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 72,6 fm íbúð á 2. hæð í sjarmerandi steinsteyptu fjórbýlishúsi við Grettisgötu 74, 101 Reykjavík.
Húsið var byggt árið 1931 eftir teikningum arkitektsins Pjeturs Ingimundarsonar og ber með sér falleg einkenni tímabilsins. Íbúðin hefur verið endurnýjuð af miklum smekk þar sem lögð hefur verið áhersla á að varðveita upprunalegan karakter eignarinnar. . Um 2,70 metra lofthæð, glæsilegir loftlistar, fallegar upprunalegar hurðir og stórir gluggar skapa einstaklega hlýlegt og bjart yfirbragð.
Íbúðin  er öll nýmáluð, gólfefni endurnýjuð  á alla íbúðina.  Eldhúsinnrétting með vönduðum tækjum og góðu skápaplássi sett upp í borðstofu.  Skipulagi íbúðarinnar hefur því  verið breytt  sem nýtir fermetrana einstaklega vel. 
Fallegur, gróinn og sólríkur sameiginlegur garður er sunnan við húsið.
Staðsetningin er í hjarta miðborgarinnar þar sem örstutt er í verslanir, kaffihús, veitingastaði, Sundhöll Reykjavíkur, skóla á öllum skólastigum og alla helstu þjónustu.

Nánari lýsing
Forstofa/Gangur
Bjartur miðgangur sem tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Stofa
Rúmgóð og einstaklega björt stofa með  lofthæð, fallegum upprunalegum loftlistum og stórum gluggum sem fylla rýmið af náttúrulegri birtu.
Eldhús
Nýtt og smekklega hannað eldhús með fallegri IKEA innréttingu, ofni, spanhelluborði, háfi og góðu skápaplássi. 
Svefnherbergi I
Mjög rúmgott og bjart svefnherbergi með  fataskápum.
Svefnherbergi II
Gott og bjart svefnherbergi með sér inngangi fram á stigapall.
Baðherbergi
Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og handlaug.
Geymsla
Geymsla innan íbúðar. Auk þess fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu í risi.
Þvottahús
Sameiginlegt þvottahús í kjallara með sértengli fyrir hverja íbúð.
Garður
Fallegur, gróinn og sólríkur sameiginlegur garður sem snýr til suðurs.
Endurbætur
Íbúðin öll nýmáluð.
Ný gólfefni á allri íbúðinni.
Ný og glæsileg eldhúsinnrétting ásamt nýjum eldhústækjum.
Innra skipulag endurbætt með nútímalegri rýmisnýtingu.
Stigagangur endurnýjaður árið 2019; skipt var um teppi og veggir, loft, listar og hurðir málaðar.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali, sími 895 2115, netfang: [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

img
Snorri Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Snorri Snorrason

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. jan. 2022
41.800.000 kr.
55.900.000 kr.
72.6 m²
769.972 kr.
13. ágú. 2018
34.350.000 kr.
36.900.000 kr.
72.6 m²
508.264 kr.
15. nóv. 2006
14.360.000 kr.
16.600.000 kr.
72.6 m²
228.650 kr.
19. sep. 2006
14.360.000 kr.
14.200.000 kr.
72.6 m²
195.592 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Snorri Snorrason

Síðumúla 27, 108 Reykjavík