Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Laugaborg - Þaksvalir (602)

105 Reykjavík

212.000.000 kr.

1.506.752 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2537440

Fasteignamat

129.400.000 kr.

Brunabótamat

88.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
140,7 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 30. ágúst 2026 kl. 13:00 til 13:30

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna:

Stórglæsileg og vönduð penthouse í grennd við iðandi mannlíf, veitingastaði og menningu. Íbúðin býður upp á mikið útsýni og gæði. Hjarta eignarinnar er bjart alrými (56 fm) með eldhúseyju og stofu. Útgengt er á þrennar svalir; tvennar minni svalir og eina stóra þakverönd (51,5 fm) sem býður upp á mikla möguleika, t.d. má setja heitan pott þar. Svefnherbergin eru þrjú; master hjónaherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi, ásamt tveimur öðrum herbergjum með skápum. Tvö baðherbergi og sér þvottahús fylgja eigninni. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílgeymslu.

Græn svæði umlykja bygginguna ásamt þakgarði.

Sjálfstætt loftræstikerfi í öllum íbúðum. Frábær staðsetning rétt við Laugardalinn en mikil áhersla er lögð á vistvænar samgöngur og góða aðstöðu fyrir hjólandi og gangandi í hverfinu.


Bókið einkaskoðun – Böddi Lgf 8216300 eða [email protected] Sýnum alla daga vikunnar


NÁNARI LÝSING:


Íbúð 602 er glæsileg og einstaklega rúmgóð þakíbúð á 6. hæð með tvennum svölum auk stórra, rúmlega 50 fm þaksvala. Íbúðin skiptist í forstofu, glæsilega hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, annað baðherbergi, þvottahús og sjónvarpshol sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.


Hjarta íbúðarinnar er bjart og stórt alrými með eldhúsi, borðstofu og tveimur setustofum. Úr alrýminu er útgengt á stórar þaksvalir sem skapa einstaka framlengingu á íbúðinni.

Forstofa: Rúmgóð forstofa með sérsmíðuðum fataskápum sem ná upp í loft.

Hjónasvíta: Stór og glæsileg hjónasvíta með sérbaðherbergi og góðu fataherbergi.

Svefnherbergi: Tvö rúmgóð aukaherbergi. Útgengt er á svalir úr öðru þeirra.

Sjónvarpshol/aukaherbergi: Opið og rúmgott sjónvarpshol sem býður upp á þann möguleika að útbúa fjórða svefnherbergið.

Eldhús: Falleg sérsmíðuð eldhúsinnrétting úr ljósri, létthvíttaðri eik. Á borðum er quartz-steinn frá Rein, Technistone í litnum Mystery White. Eldhúseyjan er klædd sama vandaða steini á borðplötu og hliðum.

Eldhúsið skilast með vönduðum tækjum frá Siemens, þar á meðal spanhelluborði með innbyggðum gufugleypi og bakaraofni með kjöthitamæli og sjálfhreinsibúnaði.


Stofa og borðstofa: Bjart og glæsilegt alrými þar sem stór borðstofa og rúmgóð setustofa liggja sitt hvorum megin við eldhúsið. Úr alrýminu er útgengt á rúmlega 50 fm þaksvalir.

Baðherbergi: Baðherbergin eru glæsileg og með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger. Borðplötur eru úr sama quartz-steini og í eldhúsinu. Sturtur eru með Unidrain-gólfrennum.

Á gólfum og veggjum eru ítalskar flísar frá Piemme, Journey-línan í litnum Otta, 60 × 120 cm. Einn veggur er lagður skrautflísum í stærðinni 30 × 60 cm.

Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi og upphengdum innréttingum.

Skápar: Allir fata- og forstofuskápar eru sérsmíðaðir, ljósgrábrúnir að lit og með svörtum lökkuðum handföngum. Innbyggðar skúffur eru með ljúflokun.

Geymsla: Sér 15,1 fm geymsla fylgir íbúðinni.


Mikilvægar upplýsingar um myndir og gólfefni:

Stuðst hefur verið við gervigreind við stafræna innréttingu og útfærslu hluta þeirra mynda sem birtar eru með eigninni. Myndirnar eru ætlaðar til að sýna mögulega nýtingu, innréttingu og stemningu en endurspegla ekki endilega nákvæmlega afhendingarástand eignarinnar.

Íbúðin afhendist án gólfefna í þurrum rýmum. Votrými eru flísalögð samkvæmt skilalýsingu.


Nánari upplýsingar veita:


Íris Arna Geirsdóttir, löggiltur fasteignasali

Sími: 770 0500

Netfang: [email protected]


Böddi, löggiltur fasteignasali

Sími: 821 6300

Netfang: [email protected]

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík