Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
parhús

Karlagata 16

105 Reykjavík

144.900.000 kr.

994.509 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2011058

Fasteignamat

118.500.000 kr.

Brunabótamat

71.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1936
svg
145,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 30. ágúst 2026 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Karlagata 16, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 30. ágúst 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Lýsing

Sunna fasteignasala, Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Karlagötu 16, 105 Reykjavík. 

Um er að ræða virkilega fallegt parhús á þremur hæðum með stórum garði á gróðursælum reit í Norðurmýrinni. Eignin er með tvöfaldri stofu, 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Garðurinn við húsið er afar skjólsæll og er einstaklega fallegur.  

Nánari lýsing:
Miðhæð:

Komið er inn í fallega forstofu með fatahengi. Teppi á gólfi. 
Eldhúsið er á vinstri hönd þegar gengið er inn úr forstofu. Það hefur verið endurnýjað með fallegri og tímalausri innréttingu. Korkflísar eru á gólfi. Á hæðinni eru einnig tvennar rúmgóðar stofur; borðstofa og hefðbundin setustofa. Þær eru parketlagðar. Útgengt er í garðinn frá borðstofunni. 
Rishæð:
Gengið er upp teppalagðan stiga. Á hæðinni eru 2 rúmgóð svefnherbergi auk baðherbergis með baðkari. Parket er á herbergjum og dúkur er á baðherbergi. Á hæðinni eru einnig tvennar geymslur undir súð. Þakgluggi er í annarri geymslunni.
Kjallari:
Gengið er niður teppalagðan stigann. Á hæðinni eru 2 góð parketlögð herbergi, tvennar geymslur, gestasnyrting auk sturtuaðstöðu (ekki í sama rými). Þvottahús er innst á gangi og þar er einnig lítil forstofa og hurð sem leiðir út í garð. 

Garðurinn umhverfis húsið er afgirtur og mjög "prívat". Þar er mikill og fallegur gróður, m.a. rifsberjatré. 

Framkvæmdir undanfarinna ára:
2024  Skipt um þakrennur á húsinu
2023  Húsið sílanhúðað að utanverðu
2021  Þak málað
2017  Skipt um glugga
2009  Skólplagnir myndaðar. Ekki þörf á aðgerðum
1995  Skipt um þakjárn
1991  Skipt um rafmagnstöflu og dregið í upp á nýtt, skipt um eldhúsinnréttingu

Þetta er einstaklega falleg og smekkleg eign sem hefur verið vel viðhaldið. Gluggar hússins eru virkilega fallegir og vandaðir. 

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu [email protected].
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík