Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
111,7 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 27. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Holtsvegur 47, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 303. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 27. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. & SALVÖR ÞÓRA Lgf. kynna :
( Salvör: 844-1421[email protected]  |  Hera Björk: 774-1477 / [email protected])  
Falleg og björt 3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð, stórum svölum með glerlokun, einstöku útsýni, rúmgóðri sameign og sérmerktu stæði í bílageymslu í vönduðu lyftuhúsi að Holtsvegi 47.
Frábær staðsetning í suðurhlíð Urriðaholts þar sem stutt er í leik- og grunnskóla er eru rétt fyrir ofan húsið ásamt notalegu hverfiskaffihúsi. Falleg útivistarsvæði og mikil náttúrufegurð eru í næsta nágrenni og stutt í göngu- og hjólaleiðir í einstaklega fallegu umhverfi. Jafnframt er stutt í golfvöll og alla helstu þjónustu og stofnleiðir.

Húsið er vandað, með góðri aðstöðu, og sameign einstaklega rúmgóð og snyrtileg.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDIS

Húsið er vandað með góðri aðstöðu og er sameign einstaklega rúmgóð og snyrtileg.
** Rúmgott og snyrtilegt anddyri
** Mynddyrasími
** Bjartur og snyrtilegur stigagangur
** Rúmgóð lyfta
** Mjög rúmgóð vagna- og hjólageymsla
** Fallegur og góður sameiginlegur garður
** Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu með rafhleðslustöð

Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu með bílahleðslustöð. Auk þess eru 11 bílastæði fyrir utan húsið, þar af eitt fyrir hreyfihamlaða og eitt til sérafnota. Tvær sameiginlegar bílahleðslustöðvar eru við sameiginleg bílastæði.

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
     Salvör Þóra, lgf. í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið [email protected]
     Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið [email protected]


Nánar um eignina:
Um er að ræða bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með aukinni lofthæð, fallegu útsýni, stórum svölum með glerlokun og sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Heildar birtir fermetrar eignarinnar skv. HMS eru alls 111,7 fm og skiptast þannig: 
Íbúð – 88,3 fm: Forstofa, þvottahús, gangur/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. 
Geymsla – 23,4 fm: Rúmgóð sérgeymsla, velstaðsett í sameign á 1 hæð (01-0105).
Svalir – 12 fm:  Rúmgóðar svalir (01-0308) með glerlokun og skráðar 12 fm en eru ekki inni í heildar fermetratölu íbúðar.
Í sameign á fyrstu hæð er sérmerkt bílastæði (01-B03) með bílahleðslustöð í sameiginlegri bílageymslu ásamt stórri hjóla- og vagnageymsla (01-0113 - um 41,4fm).

Aðkoman að húsinu er hin snyrtilegasta með hellulögðu bílastæði. Húsið er fjögurra hæða og gengið er inn í það frá götu á 1. hæð/jarðhæð í gott anddyri með rafdrifnum hurðaopnunum og póstkössum. Á 1. hæð/jarðhæð eru jafnframt sameiginleg rými, m.a. vagna- og hjólageymsla, ruslageymsla, verkfærageymsla, lokuð bílageymsla og sérgeymslur. Af 2. hæð hússins er gengið út í snyrtilegan sameiginlegan garð og þaðan liggja tröppur upp á göngustíg fyrir ofan húsið. Íbúðin er á 3. hæð og hægt að nota rúmgóða og snyrtilega lyftu eða ganga upp snyrtilegan stiga.

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D

Nánari lýsing:
Forstofa: Parketlögð  
Þvottahús: Inn af forstofu með flísum á gólfi, handklæðaofni, þvottasnúrum, vaskaborði og vask.
Gangur/hol: Góðir fataskápar, mynddyrasími og parket á gólfi. Þaðan er gengið inní önnur rými íbúðar. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: Bjart og gott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með vandaðri innréttingu,  ljósri kvartsborðplötu, góðri walk-in sturtu og handklæðaofni. Fallegar flísar eru á gólfi og veggjum og gluggi með opnanlegu fagi veitir góða náttúrulega birtu og loftun.
Eldhús/Stofa/borðastofa: Bjart og opið alrými með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum, fallegu útsýni og parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar suðvestur svalir með glerlokun.
Eldhús: Falleg viðarinnrétting með ljósri kvartsborðplötu og flísum á milli skápa. Ofn er í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Falleg eldunareyja með góðu skúffuplássi, spanhelluborð og háfi skilur eldhúsið að frá stofu og borðstofu og myndar um leið skemmtilega tengingu milli rýmanna..
Svalir (12 fm): Stórar suðvestursvalir með glerlokun og fallegu útsýni. Svalaflísar eru á gólfi og glerlokunin gerir svalirnar að einstaklega notalegu viðbótarrými stóran hluta ársins.

Sameign: Öll hin snyrtilegasta og aðgengi gott. Útihurðir eru með rafdrifinni opnun, stigagangur er teppalagður og lyfta rúmgóð. Á 1. hæð eru vagna- og hjólageymsla, ruslageymsla, verkfærageymsla, lokuð bílageymsla og sérgeymslur.
Bílageymsla: Sameiginleg lokuð bílageymsla er á 1. hæð með 9 bílastæðum. Íbúðinni fylgir vel staðsett sérmerkt bílastæði (01-B03) með bílahleðslustöð.

Virkilega falleg, björt og vel skipulögð eign með aukinni lofthæð, stórum glerlokuðum svölum og einstöku útsýni á frábærum stað í Urriðaholti. Sjón er sögu ríkari!

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið [email protected]
     Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið [email protected]


-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu frá árunum 2013 og 2016 og höfum á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir okkur skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Við leggjum ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið okkar er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Við leggjum okkur fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband í dag fyrir frítt og skuldbundingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref.
Salvör Þóra, lgf. í síma 844-1421 eða [email protected]
Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 eða [email protected]

Ertu í fasteignahugleiðingum?
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.- 
Hafðu samband í dag fyrir frítt og skuldbundingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref.
Salvör Þóra, lgf í síma 844-1421 eða [email protected]
Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 eða [email protected]

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. feb. 2022
57.650.000 kr.
74.000.000 kr.
111.7 m²
662.489 kr.
19. mar. 2018
4.130.000 kr.
51.500.000 kr.
111.7 m²
461.056 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone