Lýsing
Miklaborg kynnir: Björt fjögurra herbergja 108,3 fm. Íbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli við Rjúpufell í Breiðholti. Stórar yfirbyggðar svalir og húsið er klætt að utan. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Nánari lýsing: Hol, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa, þvottahús og baðherbergi. Yfirbyggðar svalir. Í sameign er sér geymsla og hjóla og vagnageymsla.
Nánari lýsing
Forstofa/hol: Flísar á gólfi og fataskápar.
Eldhús: Flísar á gólfi, hvít innrétting með beykiplötu á borðum. Tengi fyrir uppþvottavél.
Þvottahús: Þvottahús er inn af eldhúsi, flísar á gólfi.
Stofa: Stofan er með harðparket á gólfi, yfirbyggðar svalir inn af stofunni.
Herbergi: Þrjú svefnherbergi með plastparket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu og innrétting.
Sameign: Sér geymsla í sameign og sameiginleg hjóla - vagnageymsla.
Staðsetning eignarinnar er góð á grónum og rólegum stað við Rjúpufell í Breiðholti þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir, þjónustu o.fl.