Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Kristjánshagi 6 104

600 Akureyri

62.900.000 kr.

880.952 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2507135

Fasteignamat

53.500.000 kr.

Brunabótamat

43.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
71,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Kasa fasteignir - 461 2010

Kristjánshagi 6 íbúð 104 - Björt og falleg 3 herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð í nýlegu fjölbýli í Hagahverfi.

Eignin skiptist í forstofu, stofu & eldhús í sama rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús ásamt sér geymslu í sameign. Gengið er út á vestur verönd úr stofu.


Forstofa: Í forstofu er tvöfaldur fataskápur með fataslá og hillum og flísar á gólfi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Bekkplötur eru úr formbeygðu harðplasti. Í eldhúsinnréttingu er svart keramik-helluborð, stál -bakaraofn, innbyggð vifta, ísskápur, vaskur og flísar á milli skápa. Parket á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi, gengið er út úr stofu á verönd til vesturs.
Baðherbergi: Baðinnrétting úr plastlagðri struktur-eik. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt klósett, sturtuhorn úr gleri og blöndunartæki af vandaðri gerð.
Herbergi: Í báðum herbergjum eru fataskápar og parket á gólfi.
Þvottahús: Í þvottahúsi er þvottatækjainnrétting úr plastlagðri struktur-eik með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur er í borðplötu. Flísar á gólfi.

- Gólfhiti er í íbúðinni
- Kappalýsing er á baðherbergi og eldhúsi.
- Sér geymsla í sameign fylgir.
- Sameiginleg hjólageymsla í sameign.
- Sólbekkir eru formbeygðir úr hvítu harðplasti.
- Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik. 
- Eignin var byggð af Hyrnu og var afhend árið 2021.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
img

Sigurbjörg Sigfúsdóttir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. apr. 2022
32.850.000 kr.
48.000.000 kr.
71.4 m²
672.269 kr.
8. apr. 2021
23.350.000 kr.
33.500.000 kr.
71.4 m²
469.188 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone

Sigurbjörg Sigfúsdóttir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri