Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Arnfinnsson
Vista
einbýlishús

Heiðarvegur 12

730 Reyðarfjörður

59.900.000 kr.

328.399 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2177157

Fasteignamat

50.750.000 kr.

Brunabótamat

79.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
182,4 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 29. ágúst 2026 kl. 14:00 til 15:00

Opið hús: Heiðarvegur 12 , 730 Reyðarfjörður. Eignin verður sýnd laugardaginn 29. ágúst 2026 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.

Lýsing

Heiðarvegur 12, Reyðarfirði: Rúmgott og bjart 182,4 m² einbýlishús á þremur pöllum ásamt stórum sambyggðum bílskúr á fallegum útsýnisstað.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Eignin skiptist á þrjá palla og hefur fengið þónokkrar endurbætur að innan sem utan á síðustu árum, þar á meðal nýtt rafmagn og nýjar vatnslagnir að mestu leyti. Á efsta palli eru lítið hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Á miðpalli má finna forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og lítið svefnherbergi sem nú nýtist sem skrifstofa. Á neðsta palli er nýlega endurnýjað þvottahús, annar inngangur og niðurgrafin geymsla. Bílskúrinn sambyggður húsinu. Talsvert af byggingarefni (m.a. parket, flísar og hurðir) fylgir með í kaupum til að klára framkvæmdir á mið- og neðri hæð.

- Talsvert endurnýjuð að innan (rafmagn, lagnir, yfirborðsefni)
- Nýtt þakjárn og pappi 2016 og hús málað að utan 2020
- Frábært útsýni yfir fjöll og gróður
- Ljósleiðararör komið inn í hús
- Mikið af byggingarefni fylgir með til að klára ófrágengin rými

SKIPULAG EIGNAR:

- MIÐPALLUR:
Forstofa: Björt forstofa með viðarparketi á gólfi, pláss fyrir yfirhafnir og opið inn í stofu. (Flísar fyrir forstofu fylgja með ólagðar).
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með viðarparketi á gólfi og skásettu lofti. Stórir gluggar hleypa inn mikilli dagsbirtu og bjóða upp á fallegt útsýni yfir fjöll og nærliggjandi hús. Rýmið rúmar vel bæði setustofu og stórt borðstofuborð.
Eldhús: Viðarlitað gólfefni, upprunaleg eða eldri innrétting með grænum neðri skápum og viðarlituðum efri skápum. Innbyggður ofn, uppþvottavél og stór stálísskápur. Horngluggar gefa góða birtu.
Skrifstofa/lítið svefnherbergi: Lítið herbergi sem nú er nýtt sem skrifstofa. Viðarparket á gólfi, pláss fyrir skrifborð og hillur.

- EFSTI PALLUR:
Hol: Ljóst viðarparket á gólfi, tengir saman svefnherbergi hæðarinnar, nýjar hvítar innihurðir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með ljósu viðarparketi á gólfi, stórum fataskápum og fallegu viðarþili við höfðalag. Gott útsýni til fjalla.
Svefnherbergi 2: Bjart herbergi nýtt sem barnaherbergi með ljósu viðarparketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Einnig á efsta palli, veggir heilsparslaðir og nýtt parket lagt.
Baðherbergi: Ljósar flísar á gólfi og brúnmynstraðar á veggjum. Sturtuklefi, salerni, handklæðaofn, hvít innrétting og lítill opnanlegur gluggi.

- NEÐSTI PALLUR:
Stigagangur og kjallari: Teppalagður stigi liggur niður í kjallararými þar sem gólf eru að hluta til ófrágengin eða steypt. Rýmið tengir saman þvottahús og aðra hluta neðri hæðar.
Þvottahús: Rúmgott og endurnýjað þvottahús með flögulögðu epoxý gólfefni. Stór grá innrétting með dökkri borðplötu og góðu vinnuplássi.
Geymsla og annar inngangur: Á neðsta palli er annar inngangur (ný útidyrahurð fylgir) ásamt niðurgrafinni geymslu.
Bílskúr: Bílskúr er sambyggður eigninni. Vatnsdæla er staðsett undir stétt með aðgengi úr bílskúr.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2177157
Stærð: Einbýlishús 182,4 m²
Byggingarár: 1959
Byggingarefni: Steypa
Gildandi fasteignamat: 50.750.000 kr.
Brunabótamat: 79.350.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 771,0 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

img
Heimir Arnfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Austurlands
Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone
img

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. okt. 2021
25.300.000 kr.
34.000.000 kr.
182.4 m²
186.404 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður