Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
fjölbýlishús

Akursíða 4 - 206

603 Akureyri

54.500.000 kr.

841.049 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2278912

Fasteignamat

42.650.000 kr.

Brunabótamat

37.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
64,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 31. ágúst 2026 kl. 16:15 til 17:00

Opið hús: Eignin verður sýnd mánudaginn 31. ágúst 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Akursíða 4 - 206

Mjög mikið endurnýjuð 2-3 herbergja íbúð á mjög vinsælum og barnvænum stað í Síðuhverfi. Eignin er á 2. hæð og um gólfsíða stofuglugga er flott útsýni til vesturs. Eignin er 64,8 fm. og þá fylgir henni hlutdeild í sameiginlegu geymslurými. 

**Gólfefni endurnýjuð**
**Baðherbergi endurnýjað**
**Innihurðir endurnýjaðar**
**Eldhúsinnrétting endurnýjuð**


Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, annað skráð sem geymsla, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi og þvottahús. 

Anddyri er með gráar flísar á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og annað þeirra með fataskáp. Minna herbergið er skráð sem geymsla en er nýtt sem svefnherbergi.
Eldhús og stofa er í opnu rými, parket á gólfum og úr stofu er gengið út á sólríkar svalir sem snúa til vesturs. Eldhúsinnrétting er nýleg, þar er innbyggð uppþvottavél og ísskápur sem fylgir, bakaraofn og falleg bekkjarplata sem heldur sér upp á milli efri og neðri skápa. Afar bjart rými. 
Baðherbergi hefur allt verið endurnýjað með skemmtilegum lausnum í innbyggðum hirslum í vegg. Þar eru flísar á gólfi og stærstum hluta veggja, sturta með sturtugleri og glæsilegum sturtutækjum, innrétting í kringum vask með speglaskáp, upphengt salerni og handklæðaofn. 
Þvottahús er með flísar á gólfi, mjög góða innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og mikið geymslupláss. 

Sameginleg geymsla er á jarðhæð, þar er hver íbúð með góða hillustæðu. 

Annað: 
-Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2023
-Baðherbergi endurnýjað 2021
-Gólefni endurnýjuð 2021
-Þvottahús endurnýjað 2021
-Hurðar og hurðakarmar endurnýjað 2021
-Hiti í gólfum í allri íbúðinni
-Næg bílastæði og rætt um að koma fyrir hleðslustöðvum
-Stutt í verslun, ýmiskonar þjónustu, leik- og grunnskóla og Bjarg íþróttamiðstöð. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. okt. 2018
19.100.000 kr.
24.500.000 kr.
64.8 m²
378.086 kr.
24. apr. 2006
10.339.000 kr.
174.160.000 kr.
1088.5 m²
160.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone