Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2007
207 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Blikatjörn 6, 260 Reykjanesbær, Skráð stærð eignar skv. FMR er 207 fm. Eignin skiptist í íbúð 158,9 fm og 49 fm bílskúr.
Um er að ræða reglulega smekklegt og vel hannað fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Njarðvík.
Upplýsingar um eignina veitir:
Halla Vilbergs löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur [email protected]
Eignin er björt, rúmgóð og einstaklega praktísk í skipulagi, með fallegu flæði milli rýma og skjólgóðum suðurpalli með heitum potti.
Eignin hefur að geyma forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Helstu kostir:
*** Einbýli á einni hæð
*** Stór og vel hirtur garður og vel viðhaldið hús
*** Skjólgóður suðurpallur með nýjum heitum potti
*** Aukin lofthæð og björt rými
*** Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi
*** Stutt í skóla, leikskóla, verslanir, sund og líkamsrækt
*** Stílhreint og opið eldhús með eikarinnréttingu og eyju
*** Rúmgott hjónaherbergi með nýjum fataskápum
*** Innbyggður 49 fm bílskúr með epoxy gólfi og geymslulofti
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Flísalagt með góðum fataskápum. Innangengt í bílskúr þar sem er rúmgott geymsluloft.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með flísum á gólfi. Útgengt er á verönd með afgirtum timburpalli og heitum potti.
Eldhús: Stílhreint og opið eldhús með eikarinnréttingu og eyju sem eykur vinnu- og geymslupláss. Innbyggður bakaraofn og örbylgjuofn í vinnuhæð og spanhelluborð. Nýr vaskur og blöndunartæki. Quarts borðplötur. Flísar á gólfi og opið rými við stofu sem skapar skemmtilega heild.
Sjónvarpshol: Rúmgott fjölskyldurými með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott og bjart, parketlagt með eikarparketi. Upphaflega var þar sér fataherbergi, en rýmið hefur verið endurbætt og nú eru nýir, vandaðir fataskápar komnir í herbergið sjálft. Rýmið sem áður var fataherbergi var hugsað sem framtíðar baðherbergi og býður enn upp á slíka möguleika ef nýir eigendur óska þess.
Svefnherbergi 1 & 2: Tvö góð barnaherbergi, bæði með eikarparketi og eikar fataskápum.
Baðherbergi: Smekklegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar og endurnýjuð sturta, upphengt salerni og snyrtileg innrétting. Blöndunartæki yfirfarin af fagmönnum.
Þvottahús: Þvottahús með góðum innréttingum og hurð út á baklóð, epoxy á gólfi.
Geymsla / herbergi:
49 fm innbyggður bílskúr með epoxy á gólfi, nýjum ljósum og geymslulofti.
Á lóð er einnig geymsluskúr sem fylgir.
Staðsetning
Blikatjörn 6 er í einstaklega góðu og rólegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu – skóla, leikskóla, matvöruverslanir, sund og líkamsrækt.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. feb. 2019
63.000.000 kr.
61.500.000 kr.
207 m²
297.101 kr.
14. des. 2007
17.740.000 kr.
30.300.000 kr.
207 m²
146.377 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026