Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2024
103,3 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg íbúð í fallegu lyftuhúsi í Urriðaholti Garðabæjar. Um er að ræða 4ra herbergja íbúð ásamt stæði í lokaðri bílageysmlu. Eignin er skráð skv fmr.103,3fm og þar af er geymsla 4,6fm. Íbúðin er björt og falleg og með gluggum í þrjár áttir úr alrými og fallegu útsýni. Úti og Inni arkitektar sáu um alla hönnun á húsinu. Staðsetningin er eftirsótt þar sem grunn og leikskóli hverfisins eru í göngufæri sem og einn besti golfvöllur landsins, Oddur. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í forstofu með góðum fataskápum.
Alrými: alrými eignarinnar, stofa, borðstofa og eldhús er mjög bjart og fallegt með glugga á þrjá vegu. Harðparket er á gólfi og útgengt út á rúmgóðar suður svalir frá stofu.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu frá JKE. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél og ofninn er í vinnuhæð. Í eldhúsinu er eyja með innfelldu spanhelluborði og hægt er að sitja við eyjuna.
Baðherbergi: Baðherbergið er fallegt með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Góð sturta með glerskilrúmi, hvít innrétting er á baðherberginu ásamt upphengdu salerni og handklæðaofni.
Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú öll með harðparketi á gólfi og fastaskáoum í tveimur herbergjum.
Þvottahús: í þvottahúsi er innrétting og flísar á gólfi.
Geymsla: sér geymsla fylgir eigninni og er hún staðsett á fyrstu hæð.
Bílastæðahús: eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Búið er að leggja rafmagn að stæðinu fyrir hleðslustöð.
Húsbyggjandi: Breiðahvarf ehf
Aðalhönnuður: Úti inni arkitektar: Baldur Svarvarsson
Verkfræðihönnun: Víðsjá
Raflagnahönnun: Lumex: Helgi Eiríksson
Niðurlag: Þetta er virkilega björt og falleg íbúð í glæsilegu 24 íbúða fjölbýli. Húsið er vel staðsett nálægt Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhraun og við Urriðavatn. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. feb. 2025
62.250.000 kr.
91.900.000 kr.
20305 m²
4.526 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026