Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja 120 m2 útsýnisíbúð á 7. hæð (efstu) í viðhaldslitlu fjölbýli í Núpalind í Kópavogi. Íbúðin er skráð 120 m2 en auk þess fylgir íbúðinni stæði í bílageymslu um 14 m2. Alls er eignin því 134 m2. Á hæðinni eru aðeins tvær íbúðir. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, búr, þvottahús, baðherbergi, stofu, borðstofu, sjónvarpsherbergi, geymslu, stórar yfirbyggðar svalir (16 m2) og stæði í bílastæðahúsi.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með góðum skápum. Flísar á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði björt og rúmgóð með góðum skápum. Parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu rúmgóðu alrými með stórum gluggum og miklu útsýni til suð-vesturs, útgengi út á stórar yfirbyggðar svalir sem snúa í suð-vestur. Parket á gólfi.
Eldhús er snyrtilegt og rúmgott með góðri innréttingu og góðu vinnuplássi, ofni í vinnuhæð, helluborði, háf og plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Parket á gólfi.
Búr er inn af eldhúsinu. Parket á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með skáp og skolvask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, salerni og innréttingum.
Sjónvarpsherbergi er mjög rúmgott en gluggalaust og undir súð að hluta. Parket á gólfi.
Geymslan er innan íbúðar og er mjög rúmgóð en undir súð að hluta. Málað gólf.
Allar innréttingar og skápar í íbúðinni eru upprunaleg en í góðu ástandi.
Núpalind 8 er staðsteypt steinhús byggt árið 1999 með einum stigagangi með lyftu, einangrað að utan og klætt með plötuklæðningu. Gluggar eru álklæddir timburgluggar með þreföldu einangrunargleri. Örstutt er í Lindaskóla, leikskóla, verslanir og göngu- og hjólaleiðir. Stigagangur og önnur sameign er sérlega snyrtileg. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Íbúðin er að mestu leyti án húsgagna. Nokkrar myndir úr íbúðinni hafa verið sviðsettar með aðstoð gervigreindar til að gefa mynd af möguleikum einstakra rýma, án þess þó að rýmunum sé breytt.
Eignin getur verið laus við kaupsamning eða mjög fljótlega eftir það.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða [email protected]