Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Björnsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
188,3 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Tröllhólar 39, 800 Selfoss,birt stærð 188.3 fm. sem skiptist í 147,7 m2 íbúð og 40,6 m2 bílskúr. Húsið er mjög vel staðsett á Selfossi en það er inn í botnlanga í Tröllhólunum.

Í eigninni eru 4 rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús og stofa. Eignin hefur fengið mjög gott viðhald og er í góðu ástandi. Á gólfi er gegnheilt viðarparket á gangi og stofunni. Gengið er inn í flísalagða forstofu með vönduðum fataskáp og aðengi að litlu gesta salerni.Í svefnherbergjum er plastparket. Í þvottahúsi, bílskúr og baðherbergjum er epoxy. Á veggjum eru hvítar flísar, upp rúmlega hálfan vegg. Þvottahúsið tengir saman íbúðarhúsið og bílskúrinn.
Í þvottahúsi er vönduð innrétting og hvítar flísar á milli borðplötu og efri skápa. Í bílskúrnum er 8,6m2 geymsla og útgengt út í bakgarð þar sem eru þvottasnúrur. Björt og rúmgóð stofa sem snýr að götunni og útgengt á timburpall.

Á bakvið pall er smá hellulögð verönd. Eldhúsið er rúmgott og pláss fyrir stórt eldhúsborð í eldhúsinu, en hægt er að loka rennihurð á milli eldhús og stofu. Herbergin eru rúmgóð og eru annað þeirra nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi annað sem skrifstofa. Innréttingar í eigninni voru sérsmíðaðar af Selós ehf. og eru mjög vandaðar.
Plan er hellulagt með hita í plani fyrir framan bílskúrinn og að götu. Þá er einnig lítil geymsla á lóðinni sem er klædd í sama stíl og húsið. Húsið er allt klætt með viðhaldslitlu efni en lárétt bárujárn er á húsinu í bland við duropal plastklæðningu sem hefur reynst mjög vel. 


Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali [email protected] s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. apr. 2009
27.130.000 kr.
29.900.000 kr.
188.3 m²
158.789 kr.
29. des. 2006
3.600.000 kr.
18.000.000 kr.
10101 m²
1.782 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone