Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
157,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 4. september 2026 kl. 16:00 til 16:30

Opið hús: Vallarás 6, 260 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd föstudaginn 4. september 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Vallarás 6, 260 Reykjanesbær

Vel skipulagt einbýlishús með þremur svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr. Eldhús, borðstofa og stofa mynda stórt og bjart alrými með útgengi á afgirtan timburpall og áfram út í garð. Gólfhiti er í húsinu og lóðin er rúmgóð og tyrfð að stórum hluta.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 157,7 m². Þar af er íbúðarhluti 131,4 m², merktur 01-0101, og bílskúr 26,3 m², merktur 01-0102. Fastanúmer eignarinnar er F2332327 og byggingarár 2019. Lóðin er 768 m² leigulóð.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er flísalögð með góðu skápaplássi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í rúmgóðu og opnu alrými. Eldhúsið er með dökkri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og stórri eyju með helluborði og setuaðstöðu. Ofn er í vinnuhæð. Stórir gluggar eru í alrýminu og útgengt er úr stofu á timburpall og áfram út í garð.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp.
Tvö svefnherbergi eru til viðbótar og eru fataskápar í báðum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og rúmgóðri sturtu með glerþiljum.
Þvottahús er með hvítri innréttingu, vinnuborði, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Geymsla er innan íbúðar.
Harðparket er á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.

Bílskúr er 26,3 m² að stærð. Þar er gólfhiti, málað gólf og rafdrifinn hurðaopnari.

Byggingarlýsing:
Samkvæmt byggingarlýsingu er húsið timburhús á steyptum undirstöðum og einangraðri steyptri gólfplötu. Húsið er klætt að utan með flísaklæðningu. Þak er kraftsperruþak og gluggar eru úr timbri, álklæddir að utan, með tvöföldu einangrunargleri. Gólfhitakerfi er í húsinu.

Lóð og aðkoma:
Lóðin er 768 m² og tyrfð að stórum hluta. Bílaplan er malarlagt. Við bakhlið hússins er rúmgóður timburpallur sem er afgirtur með skjólveggjum og tengist beint við alrými hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / [email protected]


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. feb. 2020
47.750.000 kr.
46.500.000 kr.
157.7 m²
294.864 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær