Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1937
svg
234 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 1. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 1. september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og rúmgott 234,0 m2 einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr sem stendur á 1627,0 m2 eignarlóð við Akra í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 234,0 m2, þar af íbúðarrými 206,6 m2 og bílskúr 27,4 m2. Íbúðarrými á neðri hæð skiptist í forstofu, baðherbergi, hol, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu sem er inn af bílskúr. Úr holi er stigi upp á efri hæð. Efri hæð skiptist í stórt alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, herbergisgang, baðherbergi og tvö svefnherbergi, annað er hjónaherbergi með fataherbergi. Gólfhiti er í íbúðarhluta á neðri hæð utan forstofu. Gólfhiti er á baðherbergi á efri hæð. Innfelld lýsing í flestum rýmum. Bílskúr er rúmgóður og í dag nýttur sem geymsla. Bílaplan er malbikað og að hluta upphitað. Góð timburverönd við suðurhlið hússins með heitum potti ásamt geymsluskúr. Stór og gróin lóð. Á lóðinni stendur fallegur garðskáli en auk þess stendur geymsluskúr utan lóðarmarka. Frábær staðsetning á jaðri byggðar með fallegum gönguleiðum og stígum upp á næstu fell og fjöll. 

Helstu endurbætur samkvæmt seljenda: Eignin var að miklu leyti gerð upp árin 2004-2005. Skipt var um alla glugga. Skipt var um gólfefni á jarðhæð og hita komið fyrir í gólfum í flestum rýmum. Baðherbergi og þvottahús á jarðhæð voru endurnýjuð. Á efri hæð voru gólfefni endurnýjuð og niðurlímdum hljóðeinangrandi dúk komið fyrir til að tryggja góða hljóðvist milli hæða. Eldhús var endurnýjað. Innfelldri lýsingu komið fyrir í flestum rýmum. Allar lagnir; rafmagns- og pípulagnir ásamt skolpi voru endurnýjaðar. Árið 2008 var húsið klætt að utan með bárujárni. Árið 2016 var baðherbergi á efri hæð endurnýjað. Árið 2021 var garðskáli byggður. Árið 2022 voru svalir smíðaðar og settar upp.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing
- Efri hæð:
Stofa, eldhús og borðstofa mynda stórt og bjart alrými með niðurlímdu eikarparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga eldhúsinnrétting frá HTH auk eldhúseyju. Í innréttingu er bakaraofn, gashelluborð og eldhúsvaskur. Eldhústæki frá Miele. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Á stigavegg er vegglistaverk eftir þekktan ástralskan myndlistamann David Booth (Ghostpatrol). Reykháfur í alrými hefur ekki verið notaður fyrir arinn af núverandi eigendum. Úr stofu er gengið út um tvöfalda hurð á svalir til suðurs með fallegu útsýni.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er bjart og rúmgott með fljótandi eikar-plankaparketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Svefnherbergi 2 er með fljótandi eikar-plankaparketi á gólfi.
Baðherbergi 1 er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, fallegri KVIK innréttingu með handlaug, vegghengdu salerni, "walk-in" sturtu og frístandandi baðkari. Gólfhiti er á baðherbergi og opnanlegur gluggi.
Herbergisgangur er með fljótandi eikar-plankaparketi á gólfi.
- Neðri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Inn af forstofu er baðherbergi. 
Baðherbergi 2 er með flísum á gólfi, vandaðri KVIK innréttingu með handlaug, upphengdu salerni og sturtu. Gólfhiti er á baðherberg.
Hol er með flísum á gólfi. Úr holi er stigi upp á efri hæð. Úr holi er gengið inn í þvottahús, bílskúr og geymslu.
Svefnherbergi 3 er rúmgott með gegnheilu niðurlímdu eikarparketi á gólfi og fataskáp. Rýmið er í dag notað sem sjónvarpsherbergi.
Svefnherbergi 4 er rúmgott með gegnheilu niðurlímdu eikarparketi á gólfi og fataskáp.
Þvottahús er inn af holi með flísum á gólfi og góðri innréttingu frá HTH þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi.
Geymsla inn af bílskúr er rúmgóð.
Bílskúr er inn af þvottahúsi með steyptu gólfi. Bílskúrshurð með rafdrifnum hurðaopnara. Útgönguhurð við hlið bílskúrshurðar. Rýmið hefur verið stúkað af með léttum vegg og er notað sem geymsla í dag.
Bílastæði fyrir framan bílskúr er malbikað og upphitað að hluta ásamt gönguleið að útidyrum.
Timburverönd úr harðvið með góðu skjóli eru við suðurhlið hússins með heitum potti og köldum geymsluskúr. Danfoss pottastýring er í bílskúr.
Stór, gróin og skjólgóð lóð. Á lóðinni stendur fallegur garðskáli/upplifunarskáli en þar eru ávaxtatré (epli, pera, plóma, kirsuber, bláber og vínber). Engin kynding er í skálanum. Einnig stendur við lóðina góður geymsluskúr, utan lóðarmarka. 

Verð kr. 174.900.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ